Zelenskyy vísaði hugmyndum um innrás Rússa enn á bug þegar þarna var komið við sögu. Af þeim sökum var Burns sendur til fundar við hann og með í farteskinu hafði hann skýr skilaboð til Zelenskyy: „Rússar ætla að myrða þig.“
Business Insider skýrir frá þessu og segir að þetta komi fram í nýrri bók: „The Fight of His Life: Joe Biden‘s White House“. Bókin er ekki enn komin út en hún er skrifuð af Chris Whipple rithöfundi og heimildarmyndagerðarmanni. Hann hefur áður skrifað um CIA og Hvíta húsið.
Í bókinni kemur fram að skilaboðin til Zelenskyy hafi haft mikil áhrif á hann. „Upplýsingarnar voru svo nákvæmar að þær hjálpuðu öryggissveitum Zelenskyy að koma í veg fyrir morðtilraunir við hann,“ segir í bókinni.
Burns lét Zelenskyy einnig í té upplýsingar um innrásaráætlun Pútíns til að hjálpa Úkraínumönnum að undirbúa sig undir innrásina. Meðal þessara upplýsinga voru nákvæmar áætlanir um hvernig Rússar ætluðu að ná Hostomelflugvellinum, sem er norðan við Kyiv, á sitt vald. Þar var einmitt hart barist á fyrstu dögum innrásarinnar.