Pavel Latusjka, fyrrum menningarmálaráðherra Hvíta-Rússlands, varar Vesturlönd við því að vanmeta Lukashenko. Í samtali við RND sagði hann að Hvíta-Rússland geti gengið til liðs við Rússa í stríðinu gegn Úkraínu og að hann geti á hverri stundu boðað til herkvaðningar.
Latusjka er í dag félagi í hvítrússnesku stjórnarandstöðunni og er í útlegð í Varsjá í Póllandi.
Hann sagði að heimildarmenn hans í Minsk, höfuðborg Hvíta-Rússlands, hafi sagt sér að búið sé að biðja næstum allt starfsfólk innanríkisráðuneytisins um að skila vegabréfum sínum og að það sama eigi við í hinum ýmsu bæjum og borgum landsins.
„Þetta þýðir að þetta fólk mun ekki lengur geta komist úr landi ef gripið verður til herkvaðningar,“ sagði Latusjka.
Hvítrússar hafa ekki blandað sér beint í átökin fram að þessu en hafa leyft Rússum að fara um land sitt til árása og hafa að undanförnu eflt hernaðarsamstarf sitt við Rússa. Lukashenko er mjög háður Vladímír Pútín, bæði efnahagslega og pólitískt. Spurningin er hvort hann geti staðið gegn þrýstingi ef Pútín krefst þess að Hvítrússar blandi sér í stríðið.
Latusjka sagði að það væru mistök af hálfu Vesturlanda að hafa ekki gripið til nýrra refsiaðgerða gegn Hvíta-Rússlandi síðasta hálfa árið en þau settu ákveðnar refsiaðgerðir á Hvítrússa í upphafi stríðsins. Latusjka sagði að á þessum tíma hafi Hvítrússar fengið mikla fjármuni frá Rússlandi til að halda efnahagslífi sínu gangandi og til að bæta búnað hers síns og vopnaframleiðslu. Latusjka sagði að með þessu hafi Lukashenko keypt sér tíma til að undirbúa næsta stig stríðsins, það er þátttöku Hvítrússa í því.