„Svíþjóð hefur aldrei séð neitt þessu líkt, ekkert annað Evrópuríki hefur séð neitt þessu líkt,“ sagði hann.
Hann sagði jafnframt að hann muni funda með Anders Thornberg, ríkislögreglustjóra, í dag sem og Micael Bydén, yfirmanni hjá hernum. Munu þeir ræða hvernig herinn getur aðstoðað lögregluna í baráttunni við glæpagengin.
11 manns hafa fallið í átökum glæpagengjanna nú í september, meðal þeirra saklausir borgarar. Aðfaranótt fimmtudags lést 25 ára kona þegar sprengja sprakk í Uppsala. Hún bjó í húsi nærri húsinu sem sprengingin beindist að og tengdist glæpagengjunum ekki á nokkurn hátt. Á miðvikudagskvöldið var 18 ára maður skotinn til bana á íþróttaleikvangi í Stokkhólmi fyrir framan fjölda barna og ungmenna sem voru þar á æfingu. Hann er sagður hafa tengst glæpagenginu Foxtrott.
Kristersson sagði að þessi alvarlega ofbeldisalda sé afleiðing af „pólitískri einfeldni, ábyrgðarlausri innflytjendastefnu og misheppnaðri aðlögun“.
Af þessum sökum munu Svíar nú gera breytingar á stefnu sinni í málefnum útlendinga og grípa til fleiri aðgerða.
Eins og DV fjallaði um í morgun þá er það Rawa Majid sem er miðpunkturinn í þessu stríði glæpagengjanna.
Hann er miðpunkturinn í „stærsta fíkniefnastríði Svíþjóðar“ – Þeir drepa fjölskyldur hvers annars