Aðgerðasinnarnir Elissa Bijou og Anahita Babaei hafa ákveðið að láta af mótmælum sínum í möstrum hvalveiðiskipanna Hvals 8 og Hvals 9. Þær Nú fyrir stundu virtust þær gefa merki um að þær væru tilbúnar til að koma niður úr möstrunum. Stuttu síðar kölluðu þær svo til stuðningsmanna sinna. „Afsakið, við getum ekki meira“. Hlutu þær lófaklapp fyrir.
Þær Anahita og Elissa Bijou komu sér fyrir í möstrum skipanna tveggja í fyrrinótt. Kristján Loftsson, eigandi Hvals hf., hafði þá boðað að hvalveiðar hæfust þegar veður leyfði eftir að Svandís Svavarsdóttir, matvælaráðherra, gaf leyfi fyrir hvalveiðum með hertum skilyrðum fyrir helgi.
Alls hafa þær stöllur hafist við í möstrunum í rúmar 33 klukkustundir. Bakpoki Anahitu var tekin af henni fljótlega eftir að mótmælin hófust og því hefur hún verið án vatns og vista í rúmlega sólarhring.
Lögreglan aðstoðaði Anahitu fyrst og var henni afhent vatnsflaska um leið og hún hafði klifrað út úr tunnunni í mastrinu og tók hún góðan sopa áður en að hún klifraði niður. Athygli vekur að vélar skipanna voru ræstar um leið og Anahita hafði yfirgefið mótmælastöðu sína.
Skömmu síðar aðstoðaði lögregla svo Elissu við að klifra niður úr mastrinu. Í kjölfarið fengu mótmælendurnir svo lögreglufylgd í sitthvorn lögreglubílinn. Brutust út fagnaðarlæti meðal áhorfenda þegar keyrt var með þær af vettvangi.
Fréttin verður uppfærð