fbpx
Miðvikudagur 02.apríl 2025
Fréttir

Íslenskukennsla með gervigreind

Ritstjórn DV
Mánudaginn 21. ágúst 2023 11:25

Starfsmenn Daga læra íslensku með hjálp gervigreindar/ Mynd: Aðsend

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Fyrirtækið Dagar sem sérhæfir sig m.a. í ræstingum og fasteignaumsjón, hefur fyrst fyrirtækja hafið notkun gervigreindar í íslenskukennslu fyrir starfsfólk sitt.

Í tilkynningu kemur fram að þetta sé gert í samstarfi við fyrirtækið Akademias og byggi einkum á Bara tala appinu, stafrænum íslenskukennara sem byggir á gervigreind og íslenskri máltækni. Bara tala býður upp á grunn-námskeið í íslenskukennslu og einnig vinnusértækt nám. Í tilkynningunni segir að með þessu vilji Dagar aðstoða starfsmenn af erlendum uppruna við að aðlagast íslensku samfélagi og auka vellíðan þeirra á vinnustað. Samstarf Daga og Akademias um Bara Tala geri starfsmönnum fyrirtækisins kleift að bæta við tungumálakunnáttu sína á þægilegan hátt, óháð tíma og staðsetningu.

Í tilkynningunni er haft eftir Pálmari Óla Magnússyni, forstjóra Daga:

„Dagar er tæplega 900 manna vinnustaður þar sem ríflega 80%  starfsfólks hafa annað móðurmál en íslensku. Við vitum hversu mikils virði það er fyrir starfsfólk okkar að hafa grunnþekkingu á íslensku og höfum því í gegnum tíðina haldið uppi íslenskunámskeiðum með góðum árangri. Nú tökum við þetta skrefinu lengra og með innleiðingu Bara tala erum við að gefa fleiri starfsmönnum okkar tækifæri á að læra íslensku á einfaldan og aðgengilegan hátt.“

Pálmar segir það sérstaklega ánægjulegt að fá að taka þátt í þróun lausnar sem þessarar og það að fá að hafa áhrif á námsefnið sé dýrmætt fyrir þjónustuaðila eins og Daga.

Guðmundur Arnar Guðmundsson, framkvæmdastjóri Akademias, segir í tilkynningunni um Bara tala og samstarfið við Daga:

„Bara tala er lausn sem byggir á gervigreind og íslenskri máltækni og býður upp á stafræna leikjavædda íslenskukennslu sem eykur orðaforða, hlustunarfærni og þjálfar notendur í að tala íslensku. Þannig geta þeir æft sig í að bera fram orð og setningar í framburðarþjálfun sem skilar því að framfarir verða hraðar og árangursríkar. Okkar markmið er að gera íslenskunám ánægjulegt og aðgengilegt og við erum himinlifandi með samstarf okkar við Daga en mikill fjölda annarra íslenskra vinnustaða eru nú að hefja innleiðingu á þessari byltingakenndu, stafrænu íslenskukennslu.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 6 klukkutímum

Mótmæla frumvarpi um rekstur líkhúsa – Sé ekkert annað en skattlagning á dánarbú

Mótmæla frumvarpi um rekstur líkhúsa – Sé ekkert annað en skattlagning á dánarbú
Fréttir
Fyrir 7 klukkutímum

Tveir voru handteknir í aðgerð lögreglunnar gegn barnaníðsefni

Tveir voru handteknir í aðgerð lögreglunnar gegn barnaníðsefni
Fréttir
Fyrir 10 klukkutímum

Fordæma seinagang mennta- og barnamálaráðuneytisins

Fordæma seinagang mennta- og barnamálaráðuneytisins
Fréttir
Fyrir 10 klukkutímum

Óska eftir því að þeir sem dvöldu á vöggustofum sem börn stígi fram og gefi kost á viðtali

Óska eftir því að þeir sem dvöldu á vöggustofum sem börn stígi fram og gefi kost á viðtali
Fréttir
Fyrir 13 klukkutímum

Evrópskir hermenn eiga að tryggja að Rússar ráðist ekki á ný á Úkraínu

Evrópskir hermenn eiga að tryggja að Rússar ráðist ekki á ný á Úkraínu
Fréttir
Fyrir 14 klukkutímum

Svona er staðan á Reykjanesskaga eftir nóttina

Svona er staðan á Reykjanesskaga eftir nóttina