Rannsóknarlögreglumenn hafa samkvæmt erlendum miðlum fundið hljóðeinangrað herbergi í kjallara á heimili raðmorðingjans Rex Heuermann og eiginkonu hans Ásu Guðbjörgu Ellerup í Massapequa Park í Long Island . Telur lögreglan að að minnsta kosti eitt fórnarlamb hans hafi verið drepið í herberginu.
Umfangsmikil vinna hefur staðið yfir á vettvangi í ellefu daga, eða frá því að Rex var handtekinn, og nota lögreglumenn meðal annars leitarhunda og radartæki til þess að reyna að finna hvort eitthvað sé grafið í jörðu á og í kringum heimilið, til dæmis lík eða einhverskonar „verðlaunagrip“ sem raðmorðingjar eiga til að halda upp á til að endurupplifa myrkraverk sín. Heimilið og garðurinn er gjörsamlega fínkembt í leit að vísbendingum.
New York Post greinir frá þessu og hefur það eftir nágranna Rex og Ásu, Robert Musto, 64 ára gömlum ellilífeyrisþega sem lýsir Heuermann sem „brjálæðingi“ sem hafði ekki átt í neinum samskiptum við nágranna sína.
Þá hafa ýmsir skuggalegir gripir verið fjarlægðir af vettvangi. Meðal annars óhugnaleg ljóshærð dúkka í fullri stærð, portrett mynd af konu sem er marin og blá eins og eftir hrottalegt ofbeldi og næstum því 300 skotvopn, skráð og óskráð, sem Rex átti og var afar stoltur af.
Þá hafa borist fregnir af því að Rex þurfi að hafa varann á í Suffolk-sýslufangelsinu þar sem hann er í haldi. Þar eru margir glæpamenn í haldi sem eru frá Long Island og þekkja vel til hryllingsins sem „Gilgo-Beach“-morðin vöktu í samfélaginu. Ofbeldismenn gagnvart konum eru illa séðir í fangelsinu. „Hann þarf að sofa með augun opin,“ hefur New York Post eftir fanga sem dúsir í sama fangelsi.