Aðfaranótt 24. júní lést Karolis Zelenkauskas eftir alvarlega líkamsárás á skemmtistaðnum Lúx í miðbæ Reykjavíkur.
Sjá einnig: Mannslátið á LÚX – Hinn grunaði laus úr haldi
Karolis var 25 ára og hafði búið hérlendis og unnið í nokkra mánuði áður en hann lést. Kærasta hans Monika flutti til hans tveimur vikum áður en hið hörmulega atvik átti sér stað. Söfnun hefur verið komið af stað til að flytja Karolis og kistu hans heim til föðurlandsins Litháen.
„Hjálpum Karolis að fá eilífa hvíld í föðurlandinu,“ segir í færslu vegna söfnunarinnar. Söfnunin gengur vel, þegar þetta er skrifað hafa tæp átta þúsund pund safnast, en markmiðið er að safna 10 þúsund pundum.
Sá sem er grunaður um að hafa valdið dauða Karolis er 28 ára gamall og æfir hnefaleika. Vitni telja að Karolis hafi látist vegna eins höggs í hnakka frá hinum grunaða. Hann sat í gæsluvarðhaldi í tæpa viku en greint var frá því síðastliðinn fimmtudag að honum hafi verið sleppt úr haldi lögreglu. Rannsókn málsins miðar vel áfram samkvæmt tilkynningu frá lögreglu.