Svikaferill fertugrar konu, sem starfar sem leiðbeinandi í grunnskóla Kópavogi, nær aftur til ársins 2016. Þá greindi DV frá því að hún hefði svikið ungan mann, Jóhann Guðna Harðarson, um peninga með því að ljúga að honum að hún væri að safna fyrir jarðarför móður sinnar, sem síðar kom í ljós að var sprelllifandi.
Eins og greint var frá í gær situr umrædd kona í gæsluvarðhaldi til júníloka vegna gruns um að hún hafi svikið stórfé, um 200 milljónir, út úr hátt í 400 einstaklingum sem hún er talin hafa notað til að fjármagna spilafíkn sína. Konan starfar í dag sem leiðbeinandi í grunnskóla í Kópavogi en stutt er síðan hún var umsjónarkennari í öðrum skóla í sama bæjarfélagi. Konan hefur í gegnum árin sett sig í samband við karlmenn á einkamálasíðum og óskað eftir peningalánum. Hún hafi lofað að greiða peningana til baka en ekki staðið við það. Mörg hinna meintu brota eru þó mun alvarlegri en þetta og er konan meðal annars grunuð um að hafa svikið út fé úr parkinson-sjúklingi sem þjáðist af lyfjaeitrun sem og fjórum einstaklingum með þroskaskerðingar.
Þá lýsti móðir eins fórnarlambsins fyrir DV í gær hvernig sonur hennar var svikinn um stórfé og væri í sjálfsvígshættu eftir að hafa þurft að horfast í augu við niðurlæginguna sem því fylgir.
Í umfjöllun gærdagsins kom fram að brot konunnar næðu til ársins 2018 en af áðurnefndri umfjöllun DV að dæma hófst svikaferill konunnar mun fyrr. Aðferðarfræðin við svikin, sem miðillinn fjallaði um árið 2016, var á þá leið að konan setti sig í samband við Jóhann Guðna á samfélagsmiðlum og tjáði honum fljótlega að hún hefði misst móður sína.
Fyrst vantaði hana litlar upphæðir í lán fyrir ýmsum kostnaði við útförina en að endingu hafði Jóhann Guðni lánað henni allt sitt sparifé, 220 þúsund krónur alls. Þegar fjársvikarinn stakk upp á því að Jóhann Guðni myndi taka smálán til að lána henni meira fé var það kornið sem fyllti mælinn. Fljótlega kom í ljós að um fullkomna lygasögu var að ræða og að móðir konunnar væri sprellifandi.
Í umfjöllun DV á sínum tíma var rætt við föður konunnar sem sagði dóttur sína eiga við andleg veikindi að stríða.
„Hún er lent í vítahring. Allir hennar peningar hafa farið í spilakassa og þegar hennar fé var uppurið þá fór hún að sækjast eftir láni frá öðrum og þannig vatt vandamálið upp á sig,“ sagði faðirinn i samtali við DV árið 2016. Hann sagðist aðeins hafa vitað af skuldum hennar við Jóhann Guðna og reynt að aðstoða dóttur sína við að greiða skuldina til baka. „Við foreldrarnir erum bæði öryrkjar og höfum því miður ekki mikið milli handanna til að gera upp svo háar fjárhæðir í einni greiðslu. Það er ömurlegt ástand á heimilinu,“ segir faðirinn. Að hans sögn hefur dóttir hans þegar hafið viðeigandi meðferð við sínum vandamálum og hann ætli að styðja hana með ráðum og dáð. „Ég vona að þessi umfjöllun verði til góðs og dóttir mín nái tökum á lífi sínu“, er haft eftir föðurnum árið 2016 en ljóst er að þá var svikaferill dóttur hans rétt að hefjast.