fbpx
Þriðjudagur 16.júlí 2024
Fréttir

Vítalía verður ekki ákærð fyrir tilraun til fjárkúgunar – Málið fellt niður

Ritstjórn DV
Föstudaginn 9. júní 2023 12:54

Vítalía Lazareva Mynd: Anton Brink

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Héraðssaksóknari hefur ákveðið að fella niður rannsókn á kæru sem lögð var fram gegn Vítalíu Lazarevu vegna meintrar fjárkúgunar á hendur þeim Ara Edwald, Hreggviði Jónssyni og Þórði Má Jóhannessyni þar sem málið þótti ekki líklegt til sakfellingar. Frá þessu greinir Heimildin.

Þremenningarnir kærðu bæði Vítalíu og fyrrum sambýlismann hennar, Arnar Grant, til héraðssaksóknara á síðasta ári, en héldu þeir fram að þau Vítalía og Arnar hefðu reynt að hafa af þeim fé, haft í hótunum við þá og brotið gegn friðhelgi þeirra.

Má rekja málið til frásagnar og síðar kærðu Vítalíu á hendur þremenningunum vegna atviks sem átti sér stað í heitum potti í sumarbústað árið 2020. Vítalía steig fram og sagði mennina hafa brotið á sér. Hún kærði þá svo fyrir kynferðisbrot á síðasta ári en héraðssaksóknari ákvað í apríl á þessu árið að fella rannsóknina niður. Sú ákvörðun hefur verið kærð til ríkissaksóknara.

Lögmaður Vítalíu sagði í yfirlýsingu til Heimildarinnar að réttlætið hafi nú sigrað hvað kæru þremenningana gegn skjólstæðingi hans varðar. Heimildin greinir frá því að óvíst sé hvort rannsókn á hendur Arnari Grant, sem þremenningarnir kærðu líka,  hafi sömuleiðis verið felld niður.

Sjá einnig:

Fullyrt að Arnar og Vítalía hafi verið kærð fyrir tilraun til fjárkúgunar – Vítalía vildi 150 milljónir eftir skatt

Segir ýmislegt benda til þess „að þungamiðja Vítalíumálsins snúist um tilraun til stærstu fjárkúgunar Íslandssögunnar“

Vítalía sakar þjóðþekkta menn um alvarleg brot gegn sér – „Ég horfi í augun á honum og ég er við það að gráta“

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 23 klukkutímum

Dómarinn rifjaði upp langan brotaferil Kourani – Hefur aldrei stundað vinnu á Íslandi

Dómarinn rifjaði upp langan brotaferil Kourani – Hefur aldrei stundað vinnu á Íslandi
Fréttir
Fyrir 23 klukkutímum

Auglýsingin fræga á Laugaveginum að hverfa – „Hræðilegt það er verið að byrja að mála yfir þetta“

Auglýsingin fræga á Laugaveginum að hverfa – „Hræðilegt það er verið að byrja að mála yfir þetta“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

„Það er siðferðislega óásættanlegt að þessu tjóni verði eingöngu velt yfir á íbúa í Vestmannaeyjum “

„Það er siðferðislega óásættanlegt að þessu tjóni verði eingöngu velt yfir á íbúa í Vestmannaeyjum “
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Íslendingur dæmdur í þriggja mánaða fangelsi í Danmörku fyrir að kýla unnustu sína margsinnis á bílastæði

Íslendingur dæmdur í þriggja mánaða fangelsi í Danmörku fyrir að kýla unnustu sína margsinnis á bílastæði