Ættingar manns sem hvarf fyrir um hálfu ári hafa höfðað mál fyrir Héraðsdómi Reykjaness til ákvörðunar um að maðurinn verði talinn látinn.
Um er að ræða sjómanninn Ekasit Thasaphong sem féll útbyrðis er hann var við störf á skipinu Sighvatur GK 57. Maðurinn er frá Grindavík. Minningarathöfn var haldin um Bhong, eins og hann er ávallt kallaður, við Grindavíkurkirkju síðastliðinn miðvikudag.
Stefnan, sem hér er um rætt, birtist í Lögbirtingablaðinu í dag. Þar segir:
„Stefnandi kveður málsatvik vera þau að þann 3. desember 2022 hafi Ekasit Thasaphong, kallaður Bhong (hér eftir „Bhong“ eða „hinn horfni“), verið við störf á skipinu Sighvati GK 57. Skipið er talið hafa verið statt um 25 sjómílum norðvestur af Garðskaga í utanverðum Faxaflóa um klukkan 16.04 þegar Bhong hafi fallið útbyrðis. Urðu aðrir skipverjar ekki varir við atvikið þegar það átti sér stað en nokkru síðar uppgötvaðist að Bhong væri ekki lengur um borð í skipinu. Hófst þá umfangsmikil leit að Bhong á því svæði sem skipið hafði farið um síðan atvikið átti sér stað og þar í kring, en sú leit skilaði ekki árangri.“
Í stefnunni er bent á að ekki hafi uppgötvast um borð að Bhong væri horfinn fyrr en rúmum hálftíma eftir að hann féll útbyrðis. „Hægt er að tímasetja atburðinn þegar Bhong er talinn hafa fallið frá borði þar sem það sést á myndavél sem staðsett er á neðra dekki við línubeitingarvél hvenær band sem sett er á milli rekka og færis, millibóls, er bundið í línu og fer út í gegn um línuvélina.“
Segir stefnandi að ljóst sé af atvikum að Bhong sé látinn. Stefnandi er eftirlifandi sambýliskona Bhongs og segir í stefnunni að hún fari með umsjá þriggja barna þeirra. Ennfremur segir:
„Án dóms um ákvörðun þess efnis að Bhong skuli talinn látinn verður ekki gefið út dánarvottorð auk þess sem ekki verður gengið frá skiptum á dánarbúi hans. Er stefnanda því nauðsynlegt að höfða mál til að fá dóm um að um að hinn horfni skuli talinn látinn.“
Málið verður tekið fyrir í Héraðsdómi Reykjaness þann 6. september næstkomandi.