fbpx
Mánudagur 20.janúar 2025
Fréttir

Trans Ísland hlýtur mannréttindaverðlaun Reykjavíkurborgar 2023

Ragna Gestsdóttir
Föstudaginn 19. maí 2023 14:47

Mannréttindaverðlaun Reykjavíkurborgar voru afhent í Höfða föstudaginn 19. maí 2023. Ólöf Bjarki Antons, formaður Trans Ísland flytur ræðu við afhendingu mannréttindaverðlauna Reykjavíkurborgar í Höfða Mynd: Róbert Reynisson

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Dagur B. Eggertsson borgarstjóri afhenti í dag Ólöfu Bjarka Antons formanni samtakanna Trans Ísland mannréttindaverðlaun Reykjavíkurborgar 2023 en samtökin hafa barist fyrir réttindum trans fólks á Íslandi. Verðlaunin eru veitt árlega til einstaklinga, hópa, félagasamtaka eða stofnana sem á eftirtektarverðan hátt hafa staðið vörð um mannréttindi.

Verðlaunin voru veitt í Höfða í dag 19. maí, en mannréttindadagur Reykjavíkurborgar er 16. maí og er markmið dagsins að vekja athygli á mannréttindum borgarbúa og mannréttindastefnu borgarinnar. Það var mannréttinda- og ofbeldisvarnarráð sem samþykkti á fundi sínum þann 15. maí s.l. að Trans Ísland hlyti verðlaunin. Handhafi verðlaunanna hlýtur að launum 600.000 kr.

Að athöfn lokinni efri röð f.v. Anna Kristinsdóttir, mannréttindastjóri Reykjavíkurborgar, Reyn Alpha Magnúsar, Elías Rúni og Andie Sophia Fontaine, í stjórn Trans Ísland. Í neðri röð Dagur B. Eggertsson borgarstjóri og Ólöf Bjarki Antons formaður Trans Ísland
Mynd: Róbert Reynisson

Rökstuðningur valnefndar

Trans Ísland hefur frá árinu 2007 barist fyrir réttindum trans fólks. Félagið hefur með starfi sínu valdið grundvallarbreytingu á skilningi fólks á kynjajafnrétti. Í gegnum árin hefur félagið staðið fyrir umfangsmikilli fræðslu til almennings um málefni trans fólks og unnið faglega með stjórnvöldum til að tryggja kynrænt sjálfræði og treysta réttindi allra kynja. Trans Ísland vinnur náið með almannaheillasamtökum hér á landi og erlendis gegn vaxandi hatri í garð trans fólks sem og alls hinsegin fólks.

Dagur sagði við afhendingu verðlaunanna að það væri afar mikilvægt að við öll fáum notið mannréttinda. Borgin vinni stöðugt að því að styrkja og standa vörð um þá hópa sem eru berskjaldaðir í samfélaginu, og vill tryggja að öll fái þá þjónustu sem þau eiga rétt á, og halda ávallt mannréttindum á lofti.

Til hamingju Trans Ísland með mannréttindaverðlaun Reykjavíkurborgar 2023.

Ólöf Bjarki Antons, formaður Trans Ísland, tekur við mannréttindaverðlaunum Reykjavíkurborgar í Höfða
Mynd: Róbert Reynisson
Mynd: Róbert Reynisson

Áður hafa hlotið mannréttindaverðlaun Reykjavíkurborgar:

Alþjóðahús 2008

Rauði Kross Íslands 2009

Blátt áfram 2010

Hinsegin dagar 2011

List án landamæra 2012

Kvennaathvarfið 2013

Geðhjálp 2014

Frú Ragnheiður 2015

Þórunn Ólafsdóttir 2016

Með okkar augum 2017

Samtök kvenna af erlendum uppruna á Íslandi -W.O.M.E.N. Á Íslandi 2018

Móðurmál – Association of Bilingualism 2019

Solaris hjálparsamtök fyrir hælisleitendur og flóttafólk á Íslandi 2020

Rótin, félag um konur áföll og vímugjafa 2021

Pepp Ísland, grasrót fólks í fátækt 2022

Trans Ísland 2023

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 15 klukkutímum

Samfylkingin fær á baukinn: Segir að kjósendur séu hafðir að fíflum

Samfylkingin fær á baukinn: Segir að kjósendur séu hafðir að fíflum
Fréttir
Fyrir 16 klukkutímum

Verður Áslaug Arna næsti formaður Sjálfstæðisflokksins?

Verður Áslaug Arna næsti formaður Sjálfstæðisflokksins?
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Móðir keypti pennaveski fyrir dætur sínar á Shein – Dauðbrá þegar hún sá hvað var í því

Móðir keypti pennaveski fyrir dætur sínar á Shein – Dauðbrá þegar hún sá hvað var í því
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Tálbeituhópurinn: Maður á Akranesi þungt haldinn eftir misþyrmingar með járnkylfum og hnífi

Tálbeituhópurinn: Maður á Akranesi þungt haldinn eftir misþyrmingar með járnkylfum og hnífi