Þetta kemur fram í greiningu sem hinn þekkti rússneski stjórnmála- og félagsfræðingur Greg Yudin birti á Twitter í síðustu viku.
„Lengi var tók enginn sér orðið „ósigur“ í munn og skipti þá engu þótt fólk teldi innrásina klikkaða. En þetta hefur breyst. Nú gerist þetta mjög oft og það er dramatísk breyting borið saman við fyrstu mánuði stríðsins,“ skrifaði hann.
Hann segist vonast til að nú hefjist umræða um hvernig ósigur það er sem bíður Rússa. „Ósigur fyrir grimmdarlegar áætlanir Pútíns er ekki það sama og ósigur fyrir Rússland,“ skrifaði hann og á þar við að ósigur verði ekki ósigur fyrir Rússland og Rússa, heldur aðeins fyrir Pútín og valdhafana.
„Pútín lætur þetta hljóma eins og ósigur þýði að ráðist verði inn í Rússland og því skipt upp, að rússneskum konum verði nauðgað og börnum slátrað og þau krossfest. Að útlendingar muni stýra landinu,“ skrifaði hann og bætir við að umræðan um hugsanlegan ósigur sé hafin í Rússlandi og það sé mikilvægt að greina á milli hugmyndarinnar um ósigur og óttans við hamfarir.