Í byrjun þessa mánaðar steig þrítugur maður að nafni Jordan Neely um borð í neðanjarðarlest í New York borg. Í umfjöllun CNN kemur fram að Neely hafi aldrei náð að höndla dauða móður sinnar en hún var myrt með hrottalegum hætti árið 2007.
Hann vann lengi fyrir sér með því að koma fram sem Michael Jackson eftirherma á Times Square og í neðanjarðarlestum borgarinnar. Á síðustu árum hafði hins vegar andleg heilsa hans farið versnandi og Neely var orðinn heimilislaus.
Þegar hann steig um borð í neðanjarðarlest einu sinni sem oftar, þann 1. maí síðastliðinn, hrópaði hann hástöfum á aðra farþega að hann væri svangur, þyrstur og þreyttur á því að eiga nákvæmlega ekkert. Hann æpti einnig að hann vildi helst fara í fangelsi. Aðrir farþegar urðu þá taugaóstyrkir og fóru að færa sig frá Neely. Sum vitni vilja þó meina að engin ógn hafi stafað af honum og hann ekki virst líklegur til að ráðast á aðra farþega. Einn farþega steig þá fram, tók Neely hálstaki og náði að skella honum í gólfið.
Þetta reyndist Neely ofviða. Hann lést af völdum hálstaksins og réttarmeinafræðingur úrskurðaði að dánarorsök væri morð. Réttarmeinafræðingurinn tók þó enga afstöðu til þess hvort um morð af yfirlögðu ráði var að ræða.
Dauði Neely þykir gott dæmi um að heimilsleysi í New York fari vaxandi og að fólki með geðsjúkdóma fari fjölgandi á götum og í neðanjarðarlestum borgarinnar. Málið hefur orðið kveikja að mótmælum og mótmælendur krefjast aðgerða til að koma í veg fyrir slíka atburði og að sá sem varð Neely að bana verði sóttur til saka.
Ríkisstjóri New York-ríkis, Kathy Hochul hefur tekið undir þær kröfur.
Maðurinn sem varð Neely að bana er fyrrverandi liðþjálfi í landgönguliði Bandaríkjanna og heitir Daniel Penny. Hann hefur leitað liðsinnis lögmanna sem gáfu út þá yfirlýsingu að um algjört óviljaverk hefði verið að ræða og að vonandi yrði þetta mál til þess að kjörnir fulltrúar í borginni tækju vanda geðsjúkra, sem búa við heimilisleysi, traustari tökum.
Í gær var síðan kunngjört að Daniel Penny yrði ákærður fyrir manndráp af annarri gráðu en við því getur legið allt að 15 ára fangelsi.
Jordan Neely hafði komist þó nokkrum sinnum í kast við lögin en fólk sem þekkti hann lýsti honum sem góðum og indælum manni.