Fyrr í dag birti DV frétt um tölvuárás á kerfi lögreglunnar hér á landi sem gerð var á síðasta ári og talið er nokkuð víst að rússneskir tölvuþrjótar beri ábyrgð á. Embætti ríkislögreglustjóra opinberaði fyrst að árásin hefði átt sér stað í skýrslu sem embættið birti í gær.
Dv beindi nokkrum skriflegum spurningum um árásina til embættis ríkislögreglustjóra sem nú hefur svarað þeim.
Í svari sem barst frá Gunnari Herði Gunnarssyni, samskiptastjóra ríkislögreglustjóra, segir að ástæða þess að greint var fyrst árásinni í gær en ekki um það leyti sem hún átti sér stað að í ljósi þess að tilraunirnar hafi ekki tekist og árásaraðili verið óþekktur til að byrja með hafi verið ákveðið að birta ekki upplýsingar um þessar árásir. Lögregla hafi hins vegar upplýst CERT-IS, landsbundið öryggis- og viðbragðsteymis vegna ógna, atvika og áhættu er varðar net- og upplýsingaöryggi, tafarlaust um árásirnar.
DV spurði hvort það væri talið fullvíst að þeir aðilar sem stóðu fyrir árásinni hafi ekki tekist ætlunarverkið og náð að brjótast inn í kerfi lögreglunnar og komast yfir einhver gögn. Svarið er að það sé mat sérfræðinga lögreglu að árásaraðilunum hafi ekki komist yfir nein gögn.
Í skýrslunni segir að reynt hafi verið að komast í gegnum kerfi lögreglu m.a. í gegnum netaðgang starfsmanna. DV lék forvitni á að vita hversu margir starfsmenn hafi orðið fyrir þessu og hvort þetta hafi átt eingöngu við um netaðganga starfsmanna ríkislögreglustjóra eða hvort árásaraðilar hafi reynt að brjótast inn í netaðganga starfsmanna almennra lögregluembætta í landinu.
Samkvæmt svari embættis ríkislögreglustjóra var almennt reynt að komast yfir netaðganga sem tengdust tölvukerfi lögreglu. Tölvusérfræðingar lögreglu hafi stöðvað yfirtöku á notendaaðgangsreikningum og ekkert tjón hafi hlotist af þessari árás.
Loks var spurt hversu öruggt væri talið að um hafi verið að ræða rússneska tölvuþrjóta hvort talið að þeir hafi verið á vegum rússneskra stjórnvalda? Í svari embættisins segir að nokkurn tíma hafi tekið að vinna úr gögnum sem sneru að uppruna ip-talna sem tengdust árásinni. Rúmri viku eftir að árásin var yfirstaðin hafi rannsókn sérfræðinga lögreglu bent til þekkts hóps sem talin er tengjast Rússlandi.