fbpx
Föstudagur 31.janúar 2025
Fréttir

Rósa varð fyrir ógnandi áreiti í síma – „Hann vissi hvar við værum“

Ágúst Borgþór Sverrisson
Miðvikudaginn 10. maí 2023 22:05

Mynd úr safni.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Kona að nafni Rósa Bragadóttir varð fyrir óvenjulegu og óhugnanlegu símaáreiti í gær. Menn sem virtust hringja úr íslenskum símanúmerum töluðu við hana á ensku og buðu henni fjárfestingarkosti með afar ágengum hætti. Mennirnir brugðust reiðir við þegar Rósa afþakkaði að tala við þá. Voru tilburðir þeirra svo ógnandi að hún tilkynnti málið til lögreglu.

Eiginmaður Rósu, Ásgeir Ásgeirsson ljósmyndari – Geri X –, greinir frá málinu á Facebook og er frásögn hans eftirfarandi:

„Í dag fékk Rósa símtal frá íslensku símanúmeri sem er ekki í frásögur færandi, nema að þar er erlendur maður sem er mjög ýtinn að reyna að bjóða henni allskonar fjárfestingarkosti sem hún verði að taka þátt í að kaupa.

Samskiptin af hans hálfu á ensku og þegar hún stoppaði mannin af og benti honum á að hún væri bannmerkt bæði í síma- og þjóðskrá og hann mætti ekki vera að hringja í hana með einhver svona boð frekar en nokkuð annað samkvæmt fjarskiptalögum brást maðurinn hinn versti við og endaði á því að Rósa skellti bara á hann.

Nokkru síðar hringir annað íslenskt númer og erlendur karlmaður aftur á ferð að reyna að bjóða fjárfestingarkost og þá var Rósu nóg boðið og tilkynnti að símtalið yrði ekki lengra, þetta væri óumbeðin samskipti og áreiti sem yrðu tilkynnt til lögreglu. Hún tilkynnti málið til lögreglu enda orðið gott.

Núna rétt áðan hringir svo enn og aftur íslenskt númer og sami aðili á ferð sennilega, því Rósa er búin að gefast upp á þessu og rétti mér símann og ég svaraði og þar spurði maður af erlendu bergi m.v. framburð eftir Rósu. Ég tilkynnti honum að hún væri ekki við og um hvað málið snérist og þá varð hann reiður og sagði að hann vildi ræða við Rósu. Ég sagði honum að það myndi ekki gerast og sagði honum að hann hefði þegar verið tilkynntur til lögreglu.

Hann ákvað að enda samtalið af sinni hálfu á að spyrja hvort ég væri viss, hann vissi hvar við værum.

Rósa hefur þegar sent þetta til lögreglu líka, en ég velti fyrir mér hvað þurfi til að tekið sé afar hart á svona, sér í lagi ef menn hafa orðið í hótunum við fólk með að vita hvar það býr?!?“

Íslensk fjarskiptafyrirtæki með öryggisgalla

Geiri segir í samtali við DV að honum þyki illt til þess að hugsa að eitthvert íslenskt fjarskiptafyrirtæki sé með öryggisgalla sem geri óvönduðum aðilum möguleika á að spegla íslensk símanúmer. Enn verra sé þó til þess að hugsa ef aðilar sem haga sér með þeim hætti sem maðurinn gerði í símanum í gær séu staddir hér á landi. „Aðilar sem gætu gert alvöru úr duldum hótunum sínum,“ segir hann.

„Það er í raun lítið mál að spegla símanúmer ef fjarskiptafyrirtæki er með lélegt öryggisnet á kerfum sínum,“ segir hann ennfremur.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 19 klukkutímum

Brynjar Karl sakar fréttamann um að hafa snúið út úr viðtali á versta veg – „Hvenær ætla menn að fatta að það er ekki hægt að leggja menn eins og mig í einelti?“

Brynjar Karl sakar fréttamann um að hafa snúið út úr viðtali á versta veg – „Hvenær ætla menn að fatta að það er ekki hægt að leggja menn eins og mig í einelti?“
Fréttir
Fyrir 21 klukkutímum

Réttarhöld hafin yfir konu sem sökuð er um að stela yfir 8 milljónum af Grunnskólanum á Þórshöfn

Réttarhöld hafin yfir konu sem sökuð er um að stela yfir 8 milljónum af Grunnskólanum á Þórshöfn
Fréttir
Fyrir 22 klukkutímum

Fyrrverandi heimsmeistarar voru um borð í vélinni

Fyrrverandi heimsmeistarar voru um borð í vélinni
Fréttir
Fyrir 23 klukkutímum

Sýndi skilaboð frá eiginkonu sinni sem hún sendi skömmu áður en vélin brotlenti

Sýndi skilaboð frá eiginkonu sinni sem hún sendi skömmu áður en vélin brotlenti
Fréttir
Í gær

Frelsissvipting og kynferðislegar misþyrmingar í Vatnagörðum – Var skipað að kúka á gólfið

Frelsissvipting og kynferðislegar misþyrmingar í Vatnagörðum – Var skipað að kúka á gólfið
Fréttir
Í gær

Kona slösuð eftir hundaárás á Akureyri – Lögregla rannsakar málið

Kona slösuð eftir hundaárás á Akureyri – Lögregla rannsakar málið