fbpx
Laugardagur 01.febrúar 2025
Fréttir

Óhugnaðurinn í Borgarnesi vindur upp á sig – Gögn benda til misnotkunar á dóttur konunnar og hugaróra um að misnota fleiri börn

Ágúst Borgþór Sverrisson
Fimmtudaginn 4. maí 2023 09:15

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þann 16. maí næstkomandi verður fyrirtaka í Héraðsdómi Vesturlands í máli sem héraðssaksóknari hefur höfðað á hendur manni á fertugsaldri, búsettum í Borgarnesi. Maðurinn er ákærður fyrir tilraun til hlutdeildar í kynferðisbroti gegn barni. Reyndi hann að fá konu sem hann var í kynferðislegu sambandi við til að misnota fimm ára gamlan son hennar og sýna sér athæfið í gegnum snjallsíma.

Tekið skal fram að konan varð ekki við óskinni. DV hefur ekki heimildir fyrir að hún hafi verið ákærð í málinu og óvíst er að hún teljist hafa brotið af sér þó að parið hafi viðrað hugleiðingar og óra um kynferðislega misnotkun á barni.

Óhugnanlegt textaspjall

Maðurinn neitaði sök við þingfestingu málsins. Svo virðist sem maðurinn hafi gælt við hugsanir um að misnota önnur börn og einhver misnotkun hafi þegar átt sér stað. Skjáskot sem ætlað er að sýni textaspjall parsins um slíkt hafa verið í einhverri dreifingu og hafa nú ratað til DV.

Textaspjallið varðar önnur börn en son konunnar sem kemur við sögu í áðurnefndu dómsmáli, það er annars vegar dóttur þessarar konu og svo hugsanlega tvo syni mannsins.

Óhætt er að segja að textaspjallið vekur óhug. Það lýsir miklum hugarórum um kynferðislega misnotkun á börnum og virðist jafnvel benda til að einhver misnotkun hafi átt sér stað nú þegar.

Spjall þetta er ekki mikið að vöxtum en snýst meira og minna um hugaróra mannsins um kynlíf með börnum eða eitthvað því tengt. Meðal annars segir maðurinn að ungir synir hans (að virðist) hafi fengið holdris er hann snerti þá við bleiuskipti og annað því um líkt.

Sakaður um brot gegn öllum þremur börnum konunnar

Sem fyrr segir býr maðurinn í Borgarnesi en móðir barnanna býr ekki þar. Hún hefur sig ekki eins mikið í frammi hvað varðar kynóra um börn og maðurinn en svarar manninum af vinsemd og áhuga þegar hann viðrar óra sína.

Það má ráða af textaspjallinu að dóttir konunnar hafi horft ítrekað á parið í samförum. Ræða þau nokkuð um það af sýnilegri ánægju.

Samkvæmt heimildum DV gerði lögregla húsleit á heimili foreldra mannsins í Borgarnesi við rannsókn málsins og lagði meðal annars hald á heimilistölvu og snjallsíma. Maðurinn hefur verið sakaður um kynferðisofbeldi gegn öllum þremur börnum konunnar, dreng og tveimur stúlkum, en rannsókn hefur ekki enn sem komið er leitt til annarrar ákæru en þeirrar sem hér um ræðir, þar sem ákært er fyrir tilraun til hlutdeildar í broti gegn barni.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Ólöf Tara er látin

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 17 klukkutímum

Flugslysið hörmulega: Ákvað að fara fyrr heim til að komast á stefnumót með kærastanum

Flugslysið hörmulega: Ákvað að fara fyrr heim til að komast á stefnumót með kærastanum
Fréttir
Fyrir 18 klukkutímum

Eydís allt annað en sátt við Ingu Rún: „Er konunni alvara?“

Eydís allt annað en sátt við Ingu Rún: „Er konunni alvara?“
Fréttir
Í gær

Ljósleiðari rofnað í tvígang í Húnavatnssýslum á skömmum tíma – Þungar áhyggjur

Ljósleiðari rofnað í tvígang í Húnavatnssýslum á skömmum tíma – Þungar áhyggjur
Fréttir
Í gær

Kynferðisbrotamaður sleppur með skilorð eftir að móðir og stjúpfaðir brotaþola létu hendur skipta

Kynferðisbrotamaður sleppur með skilorð eftir að móðir og stjúpfaðir brotaþola létu hendur skipta
Fréttir
Í gær

Sakar RÚV um fúsk og óvönduð vinnubrögð- „Hvað næst RÚV?“

Sakar RÚV um fúsk og óvönduð vinnubrögð- „Hvað næst RÚV?“
Fréttir
Í gær

Brynjar Karl sakar fréttamann um að hafa snúið út úr viðtali á versta veg – „Hvenær ætla menn að fatta að það er ekki hægt að leggja menn eins og mig í einelti?“

Brynjar Karl sakar fréttamann um að hafa snúið út úr viðtali á versta veg – „Hvenær ætla menn að fatta að það er ekki hægt að leggja menn eins og mig í einelti?“