fbpx
Miðvikudagur 23.apríl 2025
Fréttir

Viðskiptavinur fær bætur eftir furðulegt slys í verslun á Vestfjörðum

Ritstjórn DV
Föstudaginn 28. apríl 2023 16:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Héraðsdómur Vestfjarða hefur komist að þeirri niðurstöðu að verslun á Vestfjörðum sé bótaskyld vegna slyss sem kona, viðskiptavinur verslunarinnar, varð fyrir árið 2019.

Konan sagðist hafa staðið við afgreiðsluborð verslunarinnar þar sem hún lauk viðskiptum sínum. Í kjölfarið sneri hún sér við og hugðist ganga að útidyrum verslunarinnar, en ekki fór betur en svo að hún rak sig í kassa sem var á gólfinu og hrasaði um hann.

Féll konan á snaga sem var festur á vegg og fékk hann í vinstra augað. Hlaut konan varanlegan skaða á auganu og var hún flutt með sjúkrabíl á sjúkrahús áður en hún var flutt með sjúkraflugi á bráðamóttöku Landspítalans.

Konan bar því við að rekja mætti slysið til aðgæsluleysis og vanrækslu starfsmanna. Stefndi hún bæði versluninni og félaginu sem á húsnæði verslunarinnar vegna þeirra þeirra „hættulegu aðstæðna“ sem voru fyrir hendi í fasteigninni þegar slysið varð. Tekið er fram í dómnum að sami eigandi sé að fasteigninni og umræddri verslun.

Stefndu í málinu kröfðust sýknu, meðal annars á grundvelli þess að staðsetning kassans hafi blasað við og verið augljósa öllum þeim sem gengu um verslunina.

Umræddum kassa hafi verið ýtt að útvegg til að gönguleið yrði greið frá búðarborðinu. Staðsetning kassans hafi því ekki verið sérstaklega hættuleg. Þá hafi starfsmaður vakið athygli konunnar á staðsetningu kassans með því að ýta honum til fyrir framan hana. Konan hafi  gengið á kassann án þess að líta fram fyrir sig og hafi því aðgæsluleysi hennar verið meginorsök slyssins.

Dómurinn tók ekki undir þetta og sagði í niðurstöðu sinni að aðgæsluleysi starfsmanna verslunarinnar hafi verið um að kenna sem konan gæti ekki tekið ábyrgð á. Var það því niðurstaða dómsins að viðurkenna bótaskyldu verslunarinnar. Þá var ekki fallist á það sjónarmið að konan hafi sýnt af sér aðgæsluleysi sem metið yrði henni til eigin sakar í málinu.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 11 klukkutímum

Tvö kaffihús Starbucks opna í miðbæ Reykjavíkur

Tvö kaffihús Starbucks opna í miðbæ Reykjavíkur
Fréttir
Fyrir 11 klukkutímum

Lögregla varar við svikum – „Textinn er áhugaverður svo ekki sé meira sagt“

Lögregla varar við svikum – „Textinn er áhugaverður svo ekki sé meira sagt“
Fréttir
Fyrir 23 klukkutímum

„Það er líka hugrekki í því fólgið að viðurkenna veikleika sína og sleppa“

„Það er líka hugrekki í því fólgið að viðurkenna veikleika sína og sleppa“
Fréttir
Í gær

Halla biðst afsökunar á samúðarkveðjufíaskóinu – „Ég get ekki lofað ykkur því að ég geri ekki fleiri mistök“

Halla biðst afsökunar á samúðarkveðjufíaskóinu – „Ég get ekki lofað ykkur því að ég geri ekki fleiri mistök“
Fréttir
Í gær

Undirskriftalisti til stuðnings Hauki Ægi sem sakfelldur var fyrir líkamsárás á sýrlenskan skutlara

Undirskriftalisti til stuðnings Hauki Ægi sem sakfelldur var fyrir líkamsárás á sýrlenskan skutlara
Fréttir
Í gær

Berfætt kona í kjól hneykslaði við Gljúfrabúa – „Þetta er svo mikil óvirðing gagnvart náttúrunni og öðru fólki“

Berfætt kona í kjól hneykslaði við Gljúfrabúa – „Þetta er svo mikil óvirðing gagnvart náttúrunni og öðru fólki“
Fréttir
Í gær

Auður biðlar til Ölmu Möller og spyr: Hvar er lækningin?

Auður biðlar til Ölmu Möller og spyr: Hvar er lækningin?
Fréttir
Í gær

Þetta er maðurinn sem leiðir Vatíkanið eftir andlát Frans páfa

Þetta er maðurinn sem leiðir Vatíkanið eftir andlát Frans páfa