fbpx
Miðvikudagur 17.júlí 2024
Fréttir

Tímamót í fasteignaviðskiptum: Munu gjöld einstaklinga lækka?

Ragna Gestsdóttir
Mánudaginn 17. apríl 2023 13:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Tímamót urðu í fasteignaviðskiptum hérlendis á fimmtudag þegar fyrstu skjölin voru send í rafræna þinglýsingu til sýslumanns. Það var Ás fasteignasala sem steig þetta rafræna skref með því að senda afsal í þinglýsingu.

„Að baki liggur mikil vinna og undirbúningur hjá mörgum samstarfsaðilum en um er að ræða fyrsta skrefið í þinglýsingu skjala er varða fasteignaviðskipti. Þinglýsingin tekur enga stund og er þróunin gríðarlega góð fyrir umhverfi fasteignaviðskipta. Þróunin mun halda áfram og við munum sjá enn fleiri skjölum í fasteignaviðskiptum þinglýst rafrænt á næstu misserum,“ segir í færslu Ás á Facebook.

Fé­lag fast­eigna­sala hef­ur verið í sam­starfi við Sta­f­rænt Ísland, HMS, Dokobit og ThinkSoftware, sem er með HomeEd fast­eigna­sölu­kerfið, sáu um þróun verkefnisins og segir Aron Freyr Ei­ríks­son, lög­gilt­ur fast­eigna­sali og ann­ar eig­anda fast­eigna­söl­unn­ar, í sam­tali við mbl.is að þró­un­in sé stórt skref í sögu fast­eignaviðskipta. 

Þinglýsingarkostnaður lækkar, en hvað með umsýslugjald fasteignasala?

Þinglýsingargjald á hvert skjal er 2.700 krónur. Eins og kemur fram á vef sýslumanna og í lögum 88/1991 um aukatekjur ríkissjóðs. Á vefnum kemur hins vegar ekki fram að þinglýsing með rafrænni færslu kostar 1.500 kr. og gildir sú fjárhæð frá 1. janúar 2020.

Á vefnum kemur hins vegar fram að áætlaður þjóðhagslegur ávinningur af hverju rafrænt þinglýstu veðskuldabréfi er yfir 7.000 krónur og rúmar 3.000 krónur fyrir hverja aflýsingu og felst í því að aðgerðin er rafræn færsla í stað pappírs.  Í upphafi verkefnisins var lagt mat á þjóðhagslegan ávinning af rafrænum þinglýsingum. Þegar handvirkt vinnuframlag sýslumanna, lánveitenda og fasteignasala sem verður óþarft með tilkomu lausnarinnar er tekið saman er áætlaður ávinningur af notkun hennar metinn á bilinu 1,2–1,7 milljarðar króna á ári. Ofan á það bætist svo ávinningur af því að ekki þarf að ferðast með pappírsskjöl á milli aðila og aukinn hraði viðskipta fyrir lánveitendur og fasteignasala.

En hvaða áhrif hafa þessi tímamót á gjaldtöku fasteignasölu og þann kostnað sem seljendur og kaupendur þurfa að greiða við kaup og sölu fasteigna? 

Fasteignasölur taka almennt ákveðna prósentutölu af söluverðmæti eða lágmarksgjald. Sé litið á verðskrá Ás fasteignasölu sem dæmi þá er lágmarksverð vegna sölu á fasteign er 496.000 kr. m/vsk. Almennt er sölukostnaður þó á bilinu 1,45% – 2,35% m/vsk. 

Til viðbótar sölukostnaði þarf seljandi að greiða fyrir myndatöku á eigninni, skjalafrágang og auglýsingar ef hann kýs (að hluta ókeypis á fasteignavefjum). Auk þess þarf seljandi að gjald fyrir gagnaöflun sem er 64.900 kr. m/vsk. Umsýslukostnaður kaupanda vegna sömu eignar er síðan sama tala 69.900 m/vsk.

Kostnaður vegna gagnaöflunar og umsýslukostnaður innihélt áður ferðir á staði til að sækja og fara með hin ýmsu skjöl, meðal annars að fara með kaupsamning (og fleiri skjöl) í þinglýsingu og sækja aftur og fara síðan með afsal í þinglýsingu og sækja aftur. Þegar allar slíkar ferðir verða óþarfar og aðeins verður um nokkra smelli á lyklaborðinu að ræða má velta fyrir sér hvort þessi kostnaður muni lækka eða hreinlega alveg falla niður.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Íslendingur fannst látinn á Spáni

Íslendingur fannst látinn á Spáni
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins styður ekki Coda Terminal verkefnið við Vellina – Þyrfti aðkomu minnihlutans til að koma málinu í gegn

Bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins styður ekki Coda Terminal verkefnið við Vellina – Þyrfti aðkomu minnihlutans til að koma málinu í gegn