„Mér þykir leitt að tilkynna að einhver óprúttinn aðili er búin að hakka sig inn á frettin.is,“ segir Margrét Friðriksdóttir eigandi vefsins í færslu á Facebook.
Segir hún að fyrst hafi hún talið að um væri að ræða kerfisbilun sem fleiri hafi verið að lenda í.
„En að vísu heimasíður sem ég hef unnið fyrir fólk og því bein árás á mig sem persónu virðist vera, enda gefa skilaboðin það til kynna. Ég mun að sjálfsögðu kæra þetta til lögreglu því þetta er alvarleg aðför að fjölmiðla- og tjáningafrelsinu.“
Segir Margrét að backup sé til af efni vefsins, en helgin muni sennilega fara í að koma öllu aftur í gang og eins og er viti hún ekki hvort eitthvað efni hafi tapast en hún vonar ekki.
„Þessi dagur er vissulega sorgardagur fyrir íslenska fjölmiðla, Fréttablaðið hætt eftir 22 ár og árás á eina miðillinn sem hefur fjallað um málefni sem aðrir hafa reynt að þagga niður.“