The Washington Post skýrir frá þessu og segir að ástæðan fyrir þessu sé að bandaríski framleiðandi Viagra selji ekki Viagra til Rússlands eins og stendur.
Lyf og lækningatæki falla ekki undir hinar umfangsmiklu refsiaðgerðir gagnvart Rússlandi.
Vestræn lyfjafyrirtæki hafa varað við því að afhending lyfja til Rússlands geti raskast því með refsiaðgerðunum hafa rússneskir bankar verið útilokaðir frá alþjóðlega greiðslukerfinu.