Stoltenberg hélt stuttan fréttamannafund í Brussel í gær áður en fundarhöld hófust hjá varnarmálaráðherrum NATO-ríkjanna en þar voru málefni Úkraínu efst á baugi.
Stoltenberg sagði að engin merki sjáist um að Vladímír Pútín vilji frið og því verði bandamenn Úkraínu að auka stuðninginn við Úkraínu enn frekar, meðal annars með skotfærum og varahlutum.
„Pútín er að undirbúa nýjar sóknir og árásir. Þess vegna er svo mikilvægt að við aukum stuðninginn við Úkraínu, ekki síst í formi skotfæra og aukinnar framleiðslu í varnarmálaiðnaðinum,“ sagði hann.
Hvað varðar óskir Úkraínumanna um að fá orustuþotur sagði hann að það væri ekki mikilvægasta málið núna en sé enn til umræðu. Stuðningur NATO við Úkraínu hafi breyst og þróast frá því að stríðið hófst og hann muni halda áfram að þróast í takt við stríðið.
„Stuðningurinn við Úkraínu hefur þróast. Þegar stríðið hófst sendum við Javelin-flugskeyti og síðan sífellt betri stórskotaliðsvopn. Síðan voru það loftvarnarkerfi. Nú eykst þörfin fyrir þung vopn eins og skriðdreka og brynvarin liðsflutningatæki. NATO-ríkin munu halda stuðningnum áfram, því við verðum að tryggja að Úkraína nái landsvæðum sínum aftur og sigri í stríðinu til að þjóðin geti haldið áfram að vera fullvalda þjóð,“ sagði Stoltenberg.