CNN skýrir frá þessu og segir að Stoltenberg hafi látið þessi ummæli falla þegar hann sat fyrir svörum eftir að hann hafði flutt ræðu sína.
Hann benti á að nokkur aðildarríki NATO hafi þá stefnu að aldrei megi flytja vopn til ríkja sem eiga í stríði en þau hafi breytt þessari stefnu sinni núna. Hann nefndi Þýskaland og Noreg í þessu sambandi og einnig umsóknarríkið Svíþjóð.
„Í kjölfar grimmdarlegrar innrásar í Úkraínu breyttu þessi ríki stefnu sinni því þau áttuðu sig á að þegar þú stendur frammi fyrir grimmdarlegri innrás þar sem stórveldi, Rússland, ræðst á annað ríki á óskammfeilinn hátt og við höfum séð í Úkraínu, ef við trúum á frelsi, ef við trúum á lýðræði, ef við viljum ekki að einræði og harðstjórn sigri, að þá þarf vopn til,“ sagði hann.
Þjóðverjar og Bandaríkjamenn tilkynntu nýlega að þeir muni senda skriðdreka til Úkraínu og fleiri þjóðir hafa einnig heitið að senda fullkomna skriðdreka þangað. Sumir sérfræðingar hafa bent á að suðurkóresku K2 Panther skriðdrekarnir myndu koma að gagni fyrir Úkraínu, þeir séu mjög fullkomnir og ekki ósvipaðir Leopard og Abrams skriðdrekunum hvað varðar getu.
En samkvæmt forsetatilskipun þá má ekki selja vopn eða flytja til ríkja sem eiga í stríði. En þetta þýðir ekki að suðurkóreski vopnaiðnaðurinn komi ekki við sögu í stríðinu í Úkraínu. Í desember hafði CNN eftir bandarískum embættismönnum að Bandaríkjastjórn hygðist kaupa 100.000 fallbyssuskot fyrir úkraínska herinn í Suður-Kóreu. Skotin verða flutt til Úkraínu í gegnum Bandaríkin en með því geta suðurkóresk yfirvöld sagt að þau hafi ekki sent vopn til lands sem á í stríði.