En það eru ekki allir hrifnir af heimkomu þeirra því margir þeirra voru dæmdir fyrir morð, nauðganir og ofbeldisglæpi.
Að undanförnu hafa margir rússneskir foreldrar fengið dularfull símtöl frá manni sem segist starfa hjá lögreglunni og heita Solovyov. Biður hann foreldrana um að vera á varðbergi því hættulegir fangar, sem fengu sakaruppgjöf gegn því að ganga til liðs við Wagner, séu að snúa heim. Þetta séu morðingjar, nauðgarar og barnaníðingar. Daily Star skýrir frá þessu.
Yevgeny Prigozhin, eigandi Wagner Group, hefur staðfest að fyrstu fangarnir hafi nú snúið heim sem frjálsir menn.
Alexei Shichkov sagði í samtali við Agentstvo fréttastofuna að maðurinn hafi spurt hvort hann ætti börn. „Ég svaraði að við værum ekki í Rússlandi. Hann hélt áfram og sagði að í tengslum við stríðið hafi fangar úr Wagner fengið sakaruppgjöf og sé nú frjálsir. Hann sagði að það væri hættulegt að leyfa börnum að vera úti eftir klukkan 19 og kvaddi,“ sagði hann.
Annar Moskvubúi fékk svipað símtal og var varaður við því að Wagnerliðar væru að snúa aftur til Moskvu.
Prigozhin hefur haldið því fram að það að ganga til liðs við Wagner hafi veitt mörgum föngum tækifæri á að gera upp fortíð sína og komast út í samfélagið á nýjan leik. Hann hefur farið fram á að ný lög verði sett sem kveði á um allt að fimm ára fangelsi yfir þeim sem birta „neikvæðar upplýsingar“ um þá sem berjast sem sjálfboðaliðar í stríðinu í Rússlandi.
Nýlega var birt myndband þar sem Prigozhin sést ávarpa fyrsta hópinn sem losnaði úr þjónustu Wagner og fékk sakaruppgjöf. „Ekki drekka mikið, ekki nota eiturlyf, ekki nauðga konum, ekki lenda í vandræðum,“ sagði hann við þá.