Það vakti mikla athygli þegar þessi 26 ára Rússi birtist skyndilega í Norður-Noregi fyrir um 10 dögum og sótti um hæli. Hann sagðist hafa verið meðlimur í hinum illræmda málaliðahópi Wagner og hafi barist með honum í Úkraínu. Þar sagðist hann hafa orðið vitni að stríðsglæpum og óttaðist að sögn að vera neyddur til að fremja stríðsglæpi. Af þeim sökum hafi hann ákveðið að flýja frá Úkraínu og síðan frá Rússlandi.
Hann segir að rússneskir landamæraverðir hafi sigað hundum á hann og skotið á hann þegar hann flúði frá rússneska bænum Nikel. Hann þurfti síðan að fara yfir ána Pasvikelva sem var ísilögð.
TV2 hefur eftir norskum sérfræðingum að það sé nánast ómögulegt að komast á milli landanna á þeim stað sem Medvedev fór yfir. „Ég veit ekki til þess að neinum hafi tekist þetta að vetrarlagi á síðari tímum,“ sagði Thomas Nilsen, ritstjóri The Independent Barents Observer.
Landamærasvæðið frá Múrmansk og að norska bænum Kirkenes er um 32 kílómetrar og vel vaktað.
Þeir sem ekki búa á svæðinu eða eru með dvalarleyfi þar birtast á eftirlitskerfum landamæravarða þegar farsímar þeirra koma inn á svæðið.
Íbúar á svæðinu ræða nú mikið um hvernig Medvedev hafi tekist að komast yfir gaddavírsgirðingu og í gegnum lítinn skóg áður en hann kom að Pasvikelva. Svæðið, þar sem hann fór yfir landamærin, er mjög opið og áin er breiðust þar.