Ulf Kristersson, forsætisráðherra, skýrði frá þessu á fréttamannafundi í gær og sagði að ríkisstjórnin hefði ákveðið að veita Úkraínu viðbótarstuðning.
Meðal þess sem Svíar ætla að senda til Úkraínu er Archer stórskotaliðskerfi. Þetta er sjálfstýrð fallbyssa sem dregur allt að 50 km. Sky News segir að þetta sé almennt talið einn eitt fullkomnasta stórskotaliðskerfið sem til er.
Jakob Ellemann-Jensen, varnarmálaráðherra Danmerkur, tilkynnti í gær að Danir hefðu ákveðið að gefa Úkraínumönnum 19 Caesar 8×8 stórskotaliðsbyssur.
Þetta eru franskar fallbyssur en Danir höfðu pantað 19 slíkar og verða þær afhentar á þessu ári. Danir geta ekki sent þær strax til Úkraínu því þeir hafa ekki fengið þær. Þetta eru allar byssurnar af þessari gerð sem Danir höfðu pantað til að styrkja her sinn.
Ellemann-Jensen sagði að Úkraínumenn hafi beðið um meiri stuðning frá hinum frjálsa heimi og meðal annars hafi þeir beðið sérstaklega um þessar fallbyssur og hafi Danir ákveðið að verða við þeirri ósk þeirra. Hann sagðist vonast til að hægt verði að afhenda Úkraínumönnum fyrstu byssurnar innan hálfs árs.
Þetta eru 155 mm fallbyssur sem eru framleiddar af franska fyrirtækinu Nexter. Þær draga allt að 40 km. Þær eru festar á brynvarða vörubíla en kerfið vegur 32 tonn. Kerfið getur skotið 6 skotum á tæpri mínútu.