VG skýrir frá þessu og segir að maðurinn, sem heitir Andrei Medvedev, hafi verið handtekinn í bænum Pasvik á föstudaginn fyrir að hafa komið ólöglega yfir landamærin frá Rússlandi. Lögmaður Medvedev, Jens Bernhard Herstad, staðfesti í gær að það væri skjólstæðingur hans sem hefði verið handtekinn á föstudaginn en lögreglan hafði ekki viljað nafngreina hann.
Rússneski netmiðillinn gulagu.net segir að Medvedev hafi flúið til Noregs frá rússneska bænum Nikel í Múrmansk. Eru landamæraverðir sagðir hafa sigað hundum á hann og skotið á hann.
Eftir að hann var handtekinn og óskaði eftir hæli var hann fluttur til Osló.
Fjölmiðlar skýrðu frá því fyrir nokkrum vikum að Medvedev hafi flúið frá vígvellinum í Úkraínu eftir að einn undirmanna hans var tekinn af lífi með sleggju eftir að hann gerðist liðhlaupi. Medvedev sagði í samtali við The Insider í desember að hann vissi um minnst tíu álíka mál þar sem liðhlaupar hefðu verið teknir af lífi.
Í samtali við Ukraine Today sagðist hann óttast um líf sitt eftir að hann gerðist liðhlaupi.
Eftir að hann gerðist liðhlaupi biðlaði hann persónulega til Pútíns um vernd og bað um að verða ekki afhentur liðsmönnum Wagner.
Í samtalinu við The Insider sagði hann að hann hefði komið sér upp „líftryggingu“ með því að geyma tvær upptökur af aftökum sem myndu verða birtar sjálfkrafa ef hann skyldi „hverfa.