Vilhjálmur Freyr Björnsson, var í desember dæmdur í fjögurra ára fangelsi fyrir vændiskaup, frelsissviptingu, nauðgun og sérstaklega hættulega líkamsárás. Nafn Vilhjálms, sem er á þrítugasta aldursári, var afmáð úr dómnum þegar hann var birtur á vefsíðu dómstóla en dómstóllinn hefur nú komist að þeirri niðurstöðu að rétt væri að birta nafnið samkvæmt reglum.
Samkvæmt frétt Vísis í dag kom fram í svari dómstjóra Héraðsdóms Reykjavíkur, Ingibjargar Þorsteinsdóttur, til miðilsins að gefa beri út dóminn með nafni dómfellda samkvæmt reglum dómstólasýslunnar. Því verði nafnið aftur fært inn í dóminn og dómurinn birtur að nýju sem mun gerast formlega innan tíðar.
Eins og komið hefur fram í fjölmiðlum er málsatvikum lýst með þeim hætti að Vilhjálmur hafi fengið konuna til sín til þess að kaupa af henni vændi. Hann hafi greitt fyrir ákveðna þjónustu í ákveðinn tíma en að þeim tíma liðnum vildi hann fá endurgreitt.
Þegar konan sagðist ekki geta endurgreitt honum réðst hann að henni með ofbeldi, meinaði henni útgöngu og svipti hana frelsi í minnst þrjár stundir. Á þeim tíma þvingaði hann konuna ítrekað til samræði í leggöng, endaþarm, munnmök og til að sleikja á honum endaþarminn.
Hann tók hana hálstaki minnst tvisvar og sló hana endurtekið í andlit og búk með þeim afleiðingum að konan hlaut brot á augnatóft og á vanga- og kjálkabeinum, mar á andliti, hálsi og upphafnlegg. Húðblæðingar á hálsi og punktblæðingar í andliti og slímhúð augna og í munni og þar að auki yfirborðsáverkar á andlit og búk.
Vilhjálmur játaði brotin að hluta en krafðist sýknu af ákæruliðum er vörðuðu frelsissviptingar, nauðgunar og líkamsárásar að hluta. Hann játaði að hafa tekið konuna hálstaki einu sinni og slegið hana í andlitið með handarbaki.
Samkvæmt ákæru í málinu greiddi Vilhjálmur konunni 50 þúsund krónur fyrir vændið. Nánar má lesa um ákæruna hér fyrir neðan.
Sá einnig: Frelsissvipti vændiskonu og misþyrmdi henni hrottalega
Uppfært: 14:25 – Dómurinn hefur nú verið birtur að nýju með nafni Vilhjálms. Dóminn má lesa hér.