The Guardian skýrir frá þessu. Khodorkovsky sat í rússnesku fangelsi frá 2003 til 2013 eftir að hann lenti upp á kant við Pútín. Hann segir að innrásin í Úkraínu hafi gjörbreyt markmiðum rússnesku stjórnarandstöðunnar.
„Við neyðumst til að útskýra fyrir fólki hvað það getur gert, sannfæra það um að það verði að gera þetta og hjálpa fólki sem lendir í hættulegum aðstæðum vegna aðgerða sinna,“ sagði hann í samtali við The Guardian.
Hann sagði að aðgerðir sérhvers einstaklings eigi að taka mið af hversu mikla áhættu viðkomandi þoli að taka. Þetta geti verið allt frá því að mála slagorð á húsveggi til að þess að vinna skemmdarverk í tengslum við birgðaflutninga rússneska hersins eða kveikja í skráningarstofum hersins.
„Við erum algjörlega á móti hryðjuverkaaðferðum sem skaða óvopnað fólk,“ sagði hann og gagnrýndi drápið á Darya Dugina. Hún var þekktur blaðamaður sem studdi innrásina í Úkraínu. Hún var dóttir Alexander Dugin, heimspekings og öfgaþjóðernissinna, sem er oft sagður vera „heili Pútíns“.