Sky News segir að hann hafi ávarpað íbúa í Donetsk, Luhansk, Kherson og Zaporizhzhia og öðrum svæðum sem séu laus undan stjórn nasistastjórnarinnar í Kyiv eins og hann orðaði það. „Við munum ræða hvað skref verða tekin til að vernda fullveldi okkar og styðja vilja og langanir þegna okkar til að ráða framtíð sinni sjálfir,“ sagði hann.
Hann sagði að Vesturlönd reyni að koma í veg fyrir sjálfstæði og þróun þessara svæða til að geta þröngvað vilja sínum upp á annað fólk með valdi. Markmið Vesturlanda sé enn að veikja og eyðileggja, þetta segi þau opinskátt. Úkraínski herinn hafi verið þjálfaður af NATO
Hann sagði að Vesturlönd hafi gert Úkraínu að „fallsbyssufóðri“ 2014 þegar Krímskagi var innlimaður í Rússland.
Hann sagði einnig að „aðalmarkmiðið“ um að frelsa íbúa Donbas „sé óbreytt“.
Hann sagði einnig að hann „styðji“ fyrirhugaðar atkvæðagreiðslur á hernumdu svæðunum um að þau gangi inn í rússneska ríkjasambandið og að Rússar muni gera allt sem í þeirra valdi stendur til að tryggja að atkvæðagreiðslurnar geti farið örugglega fram.
Hann sagðist hafa skrifað undir fyrirskipun um herkvaðningu, þó ekki fulla herkvaðningu, hún mun ná til þeirra sem eru í varaliði hersins. Hann sagði að strax í dag verði byrjað að kalla menn til herþjónustu og að þeir sem verði kallaðir til hennar muni njóta sömu kjara og þeir sem hafa gengið sjálfviljugir til liðs við rússneska herinn til að berjast í Úkraínu.
Hann minnti síðan Vesturlönd á að Rússar eigi gjöreyðingavopn og áskilji sér rétt til að beita þeim og sagði síðan: „Ég er ekki að plata.“