Í dönskum fjölmiðlum kemur fram að Bødskov hafi ekki viljað skýra frá hversu margir úkraínskir hermenn muni koma til Danmerkur í þjálfun eða hvenær þeir fyrstu koma.
Í ágúst var skýrt frá því að Danir myndu senda 130 hermenn til Bretlands í haust til að annast þjálfun úkraínskra hermanna þar en Bretar hafa þjálfað úkraínska hermenn síðustu mánuði.