Síðdegis í gær náðu úkraínskir hermenn bænum Kozacha Lopan á sitt vald en hann er um tvo kílómetra frá rússnesku landamærunum. Bandaríska hugveitan Institute for the Study of War (ISW) telur að úkraínski herinn sé nú með yfirráð yfir öllu svæðinu við landamæri Kharkiv að Rússlandi.
Norska ríkisútvarpið segir að á myndböndum og ljósmyndum, sem hafa verið birt á samfélagsmiðlum síðustu daga, sjáist úkraínskir hermenn í mörgum bæjum í Kharkiv. Rússar hafi ekki veitt þeim mikla mótspyrnu.
Rússneska herstjórnin tilkynnti um helgina að Rússar myndu draga sig frá Kharkiv og sögðu það gert til að hægt væri að endurskipuleggja hersveitirnar og að aðgerðinni í Kharkiv hafi verið ætlað að styrkja stöðu hersins í Donbas.
Rússar skildu mikið magn hergagna eftir í Kharkiv og munu Úkraínumenn án efa geta nýtt sér þann búnað.
Rússar gerðu flugskeytaárásir á marga staða í Úkraínu í gærkvöldi. Í Kharkiv skutu þeir flugskeytum á innviði og skemmdu orkudreifingarkerfi og vatnslagnir. Úkraínsk stjórnvöld segja að unnið sé að viðgerðum og að hér hafi verið um hreina hefndaraðgerð Rússa að ræða.
„Við lifum frekar án gass, vatns og matar en undir ykkar stjórn,“ sagði Volodomyr Zelenskyy, forseti, í hefðbundnu kvöldávarpi sínu til úkraínsku þjóðarinnar.
Rússnesku hersveitirnar, sem eru flúnar frá Kharkiv, reyna nú að koma upp nýjum varnarlínum í Donbas. Ekki er vitað hvort Úkraínumenn ætli að sækja áfram í austur.
Í daglegu stöðuyfirliti breska varnarmálaráðuneytisins um gang stríðsins segir að Rússar veiti enn smávægilega mótstöðu á nokkrum stöðum í Kharkiv en líklega sé búið að skipa hersveitunum að hörfa alfarið frá héraðinu.
Í Kherson eru þeir taldir eiga í erfiðleikum með að koma varaliði yfir Dnipro og til víglínunnar. Þeim hafi ekki enn tekist að ljúka smíði flotbrúar sem þeir byrjuðu að smíða fyrir tveimur vikum. Úkraínumenn láti stórskotaliðssprengjum rigna yfir Rússa við Dnipro svo þeir geti ekki gert við skemmdar brýr yfir ána.
Latest Defence Intelligence update on the situation in Ukraine – 12 September 2022
Find out more about the UK government's response: https://t.co/IISQBW8TQK
🇺🇦 #StandWithUkraine 🇺🇦 pic.twitter.com/QFOzJpanUr
— Ministry of Defence 🇬🇧 (@DefenceHQ) September 12, 2022