Volodomyr Zelenskyy, forseti Úkraínu, hvatti fyrr í vikunni rússneska hermenn til að flýja frá Kherson ef þeir vilja lifa.
Claus Mathisen, lektor við danska varnarmálaskólann, sagði í samtali við B.T. að sókn Úkraínumanna hafi verið lengi í undirbúningi og hún komi honum því ekki á óvart. Hann sagði að Úkraínumenn ætli að reyna að snúa gangi stríðsins við, þeim sjálfum í hag. Eftir því sem þeir segi vilji þeir að Rússar gefist upp. Það sé ekki bara hægt að gera árás og leggja borgina í rúst því þetta sé úkraínsk borg.
Hann benti á að Rússar hafi í hyggju að efna til atkvæðagreiðslna um hvort herteknu svæðin eigi að vera hluti af Rússlandi. Það verði mun erfiðara ef þeir hafi ekki yfirráð yfir svæðunum. Það valdi þeim vanda og veki efasemdir um trúverðugleika þeirra.
Mathisen sagði ekki öruggt að sókn Úkraínumanna heppnist: „Ég tel að innan viku fáum við sterka vísbendingu um hvort þetta heppnist og hvort þeir geti hrakið Rússana á brott. Spurningin er hvort þeir hafi nauðsynlegan styrk og yfirburði til að reka beinan árásarhernað.“