María Rut Kristinsdóttir, kynningarstýra UN Women og Kolbeinn Tumi Daðason, fréttastjóri Stöðvar 2, Vísis og Bylgjunnar, fara yfir fréttir vikunnar í Fréttavaktinni á Hringbraut.
Margrét Erla Maack lítur inn á dansæfingu hjá eldri borgurum og Guðmundur Gunnarsson fer yfir Helgarefnið í Fréttablaðinu með Björk Eiðsdóttur og Þórarni Þórarinssyni.
Í forsíðuviðtali verður Hrafn Jökulsson en hann segist ekki hafa hugmynd um hvort hann lifi það sjálfur að sjá réttlætinu fullnægt, en á meðan hann berst upp á líf og dauða við krabbamein í hálsi stefnir hann íslenska ríkinu fyrir læknamistök og harkalega frelsissvipting
Um miðjan mánuðinn var fyrrverandi sambýlismaður Lindu Gunnarsdóttur sakfelldur vegna ofbeldis gagnvart henni. Linda fagnar dóminum en segir alla vinnslu málsins hafa verið litaða vanhæfni og mistökum, bæði hjá lögreglu og ákærusviði.
Stefán Jón Hafstein, sem hefur dvalið langdvölum erlendis, ræðir um árin í fjölmiðlum sem hann segir hafa verið líf sitt og yndi, en fer ekki eins fögrum orðum um borgarpólitíkina sem framkvæmdagleðin leiddi hann út í.
Sjáðu Fréttavaktina hér fyrir neðan.