Sky News skýrir frá þessu. Hernám Kherson er stærsti sigur Rússa í stríðinu og eina stóra borgin sem þeim hefur tekist að leggja undir sig. Eins og kunnugt er fóru þeir sneypuför að Kyiv og urðu að hörfa þaðan eftir harða mótspyrnu Úkraínumanna.
Á síðustu dögum og vikum hafa Úkraínumenn hert árásir sínar nærri borginni og hafa nú eyðilagt þrjár mikilvægar brýr yfir ána Dnipro sem Kherson stendur við, sem gerir Rússum erfitt fyrir við að koma birgðum til hermanna sinna í borginni. Nánast útilokað er að koma þungum ökutækjum yfir ána. Markmið Úkraínumanna virðist vera að þrengja hægt og rólega að birgðalínum Rússa og einangra þá 20.000 rússnesku hermenn sem eru í borginni.
Sky News segir að talið sé að sókn Úkraínumanna að borginni sé yfirvofandi á næstunni.
Sky News segir að fregnir hafi borist af því að fjölskyldur rússneskra hermanna, sem fluttu til borgarinnar eftir hernám hennar, séu nú flúnar af ótta við sókn Úkraínumanna. Einnig hafa borist fregnir af að yfirmenn rússneska herliðsins í Kherson hafi forðað sér frá borginni og skilið undirmenn sína eftir.