Daily Mail skýrir frá þessu. Hann segir að Rússar séu að flytja stjórnstöðvar sína frá vesturbakkanum yfir á austurbakkann og skilji „heimska orka“ (það sem hann kallar rússneska hermenn) eftir.
Úkraínumenn hafa nú þegar sprengt þær þrjár brýr, sem Rússar höfðu á valdi sínu, á milli vestur- og austurbankanna í loft upp. Það þýðir að hermenn á vesturbakkanum eiga í erfiðleikum með að fá birgðir, liðsauka og við að hörfa undan Úkraínumönnum.
Kim sagði í gær að rússneskir herforingjar séu farnir að hörfa frá vesturbakkanum því þeir virðist óttast að falla eða verða handsamaðir af úkraínskum hermönnum. „Ég finn aðeins til, ekki mjög mikið, með þessum heimsku orkum sem hafa verið skildir eftir á hægri bakka Dnipro,“ skrifaði hann á Telegram.
Rússar náðu Kherson á sitt vald í mars þegar hersveitir þeirra ruddust út frá Krímskaga og lögðu undir sig stór svæði í suðurhluta Úkraínu. Borgin er hernaðarlega mjög mikilvæg því hún er við Dnipro ána sem skiptir Úkraínu í tvennt. Hún er einnig nærri strönd Svartahafsins sem tengir Úkraínu við verðmætar siglingaleiðir. Borgin hefur einnig mikið táknrænt vægi því þetta er eina héraðshöfuðborgin sem Rússar hafa náð á sitt vald.
Breska varnarmálaráðuneytið segir að jafnvel þótt Rússum takist að lagfæra fyrrgreindar brýr að miklu leyti þá verði þær áfram veikur hlekkur varðandi stöðu þeirra. Mörg þúsund hermenn á vesturbakkanum séu mjög líklega algjörlega háðir tveimur flotbrúm. Þar sem birgðaflutningar þeirra séu vandkvæðum háðir þá skipti miklu máli hversu miklum birgðum Rússar hafi safnað upp á vesturbakkanum hvað varðar hversu lengi þeir geta varist.
Bandaríska hugveitan the Institute for the Study of War telur að Rússar geti ekki lengur haldið svæðinu. Þeir muni ekki ráða við gagnsókn Úkraínumanna. Það sé ópraktískt og jafnvel ómögulegt að flytja skotfæri, eldsneyti og þungan búnað yfir flotbrýr eða loftleiðis.