Vladímír Pútín, Rússlandsforseti, hefur fram að þessu ekki gripið til almennrar herkvaðningar til að útvega nóg af hermönnum fyrir hina „sérstöku hernaðaraðgerð“ eins og Rússar kalla innrásina. Hann veit sem er að herkvaðning yrði mjög óvinsæl innanlands. Hann hefur því treyst á hermenn frá útjöðrum Rússlands eins og fram kom í umfjöllun DV í gær.
Rússar senda hersveitir frá Kyrrahafseyjum til Úkraínu – Gæti verið snjall leikur hjá Pútín
Jótlandspósturinn segir að samkvæmt heimildum, bæði rússneskum og vestrænum, sé nú heldur farið að þynnast í röðum þeirra sem hægt er að lokka til herþjónustu. Af þeim sökum hefur Pútín nú opnað veskið til að lokka málaliða til liðs við rússneska herinn. Sjálfboðaliðum er lofað launum sem eru miklu hærri en unga karlmenn getur dreymt um að fá í Rússlandi, nema auðvitað þeir tilheyri elítu Pútíns og taki þátt í að arðræna rússnesku þjóðina.
Le Monde segir að samkvæmt skjölum frá rússneska varnarmálaráðuneytinu þá bjóð herinn nú þrisvar til fjórum sinnum hærri laun en þeir hermenn, sem tóku þátt í innrásinni í upphafi, fengu.
Meðallaun utan rússnesku stórborganna eru á bilinu sem svarar til um 30.000 til 60.000 íslenskra króna á mánuði. Nú býður herinn sem svarar til um 520.000 króna til 1,3 milljóna í mánaðarlaun. Að auki eru greiddar 20.000 krónur aukalega á dag þegar hermenn taka virkan þátt í sókn rússneska hersins. Einnig eru aukagreiðslur í boði fyrir að skjóta niður þyrlu eða flugvél og fyrir að granda skriðdreka.
Herinn heitir því einnig að vera örlátur ef menn særast eða falla og styðja vel við fjölskyldur þeirra og greiða fyrir skólagöngu barna þeirra.