Konstantin Kosachev og Irina Yarovayav, sem eru varaformenn þingdeilda rússneska þingsins, sendu frá sér sameiginlega yfirlýsingu í síðustu viku þar sem þau sögðu að úkraínskum hermönnum hafi verið breytt í „hræðileg skrímsli“ í leynilegum tilraunum í rannsóknarstofum í Úkraínu. Rannsóknarstofum sem hafi verið starfræktar með stuðningi Bandaríkjanna.
„Það hafa verið gerðar tilraunir á úkraínsku landsvæði með mjög hættulega sjúkdóma sem er hægt að nota í hernaðarlegum tilgangi við ákveðnar kringumstæður,“ sagði Kosachev að sögn TV2.
Yarovayav tók undir orð hans, án þess að leggja fram nokkrar sannanir, um að úkraínsk yfirvöld noti kerfisbundið efnavopn gegn úkraínsku þjóðinni. „Þau efni, sem eru enn gefin til að gera út af við síðustu leifar mannlegrar meðvitundar og breyta þeim í hræðileg og banvæn skrímsli, staðfesta þetta,“ sagði hún
Rússnesk stjórnvöld hafa einnig sakað nágranna sína í Úkraínu um að hafa reynt að dreifa banvænum sjúkdómum á þeim svæðum sem eru á valdi Rússa. Niðurstaða þriggja mánaða langrar rannsóknar á vegum rússneska þingsins var að Úkraínumenn hefðu meðal annars reynt að koma berklasmiti fyrir á peningaseðlum og dreifa þeim síðan í Lukhansk og Donetsk sem hafa lýst yfir sjálfstæði frá Úkraínu. Einnig eru Úkraínumenn sagðir hafa reynt að búa til gas sem geti valdið kolbrandi. En Rússar hafa ekki lagt fram neinar sannanir fyrir þessum fullyrðingum sínum.
Yarovaya er enginn nýgræðingur þegar kemur að því að setja fram samsæriskenningar án þess að leggja fram nokkrar sannanir fyrir þeim. Hún hefur til dæmis haldið því fram að Úkraína og Bandaríkin standi á bak við heimsfaraldur kórónuveirunnar og fjölda annarra sjúkdóma. Hún sagði að í tilraunaglösum í bandarískum rannsóknarstofum í Úkraínu eigi að leita að fugla- og svínainflúensu, kórónuveirunni og apabólu.
.