Rússar hafa geymt vopn, þar á meðal flugskeyti, í kjarnorkuverinu. Dmytro Orlov, bæjarstjóri í Enerhodar þar sem kjarnorkuverið er, sagði að hermennirnir hafi „verið svo hræddir að þeir hafi hlaupið um skelfingu lostnir“.
Ekki er vitað hvað gerðist en upplýsingar hafa borist um að ótilgreindur fjöldi hermanna hafi látist og enn aðrir hafi særst og verið lagðir inn á gjörgæsludeild sjúkrahúss. Daily Mail skýrir frá þessu.
Petro Kotin, forstjóri Energoatom sem er kjarnorkumálastofnun Úkraínu, varaði við því á föstudaginn að staðan í kjarnorkuverinu væri „spennuþrungin“ en um 500 rússneskir hermenn eru staðsettir þar. Hann sagði að hernámsliðið hefði komið vopnum og tækjabúnaði fyrir í kjarnorkuverinu, þar á meðal flugskeytakerfi sem þeir notuðu til árása á skotmörk við Dnipro og Nikopol.
Daily Mail segir að samkvæmt því sem Orlov hafi sagt hafi níu hermenn verið fluttir á sjúkrahús, mismikið særðir. Einn hafi verið mjög alvarlega særður og hafi verið lagður inn á gjörgæsludeild. „Einhverjir dóu en við getum ekki sagt til um nákvæman fjölda á þessari stundu,“ sagði hann.
„Þeir voru svo hræddir að þeir hlupu um svæði kjarnorkuversins skelfingu lostnir og komu lengi vel í veg fyrir að vaktaskipti starfsmanna gætu farið fram,“ sagði hann einnig.