Bandaríska hugveitan Institute for the Study of War (ISW) skýrir frá þessu. Segir hún að þessar aðgerðir hafi hafist í júní og nú sé búið að setja enn meiri kraft í þær. Nýjar hersveitir, sem eru skipaðar sjálfboðaliðum, eru myndaðar daglega. Í hverri eru um 400 menn á aldrinum 18 til 60 ára.
Ekki er gerð krafa um að þeir hafi reynslu úr hernum. Þeir fara í 30 daga þjálfun áður en þeir eru sendir til Úkraínu segir ISW.
Hugveitan segir að þessi stutta þjálfun geti valdið „bakslagi“ í þeirri mynd að „gæði“ hermannanna séu ekki mikil miðað við aðra hermenn í rússneska hernum.
Til að lokka menn í herinn fá þeir eingreiðslu þegar þeir skrá sig og síðan fá þeir mánaðarlaun sem svara til um 415.000 íslenskra króna.
ISW segir að kostnaðurinn við þessar hersveitir sé mjög hár, sérstaklega í ljósi þess að eftir að 30 daga þjálfuninni er lokið og hersveitirnar eru sendar til Úkraínu þá séu hermennirnir ekki bardagafærir.
New York Times skýrði nýlega frá því að rússneski herinn hafi „gríðarlega þörf fyrir fleiri hermenn“. Til að reyna að ráða bót á því eru nýliðar sóttir til fátækra minnihlutahópa í Rússlandi, Úkraínumenn frá yfirráðasvæðum úkraínskra aðskilnaðarsinna eru fengnir í herinn sem og málaliðar. Öllum er þeim heitið góðum launum ef þeir ganga til liðs við rússneska herinn.
Rússar halda því vandlega leyndu hversu marga hermenn þeir hafa misst í stríðinu en nokkuð ljóst er að tugir þúsunda hafa fallið og særst en fram að þessu hafa þeir sent um 300.000 hermenn til Úkraínu.