fbpx
Föstudagur 14.mars 2025
Fréttir

Hinn látni í Barðavogi var þekktur veitingamaður – Hinn grunaði handtekinn fyrir ofbeldi gegn stuðningsfólki flóttamanna

Ágúst Borgþór Sverrisson
Þriðjudaginn 7. júní 2022 13:00

Mynd Fréttablaðsins frá 2019 er sýnir hinn grunaða í Barðavogsmálinu handtekinn fyrir ofbeldi gegn mótmælendum á Austurvelli.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Maðurinn sem myrtur var í Barðavogi á laugardagskvöldið var 45 ára gamall, fráskilinn faðir fjögurra barna á aldrinum tveggja til 24 ára. Maðurinn bjó í kjallara hússins en hann festi kaup á íbúðinni í mars árið 2021. Hann var fæddur árið 1975. Maðurinn var þekktur í veitingageiranum, aðallega fyrir aðkomu sína að rekstri á vinsælum veitingavögnum.

Áður hefur verið greint frá því að hinn grunaði, sem fæddur er árið 2001, hafi verið sakaður um ógnandi og ofbeldisfulla hegðun og nágrannar óttuðust hann. Lögregla var kölluð tvisvar að húsinu daginn fyrir morðið vegna framkomu mannsins en hann var þá ekki handtekinn. Er hann meðal annars sagður hafa veist að íbúa í húsinu sem er á þrítugsaldri.

DV hefur áður greint frá því að hinn grunaði hefur verið sakaður um dýraníð og hafi lýst yfir á hatri hundum. Sjá nánar hér. Lögregla hefur einnig haft afskipti af manninum vegna ofbeldis sem tengist rasisma. Fréttablaðið greindi frá því árið 2019 að hann hefði verið handtekinn vegna framkomu sinnar við mótmælendur sem lýstu yfir stuðningi við flóttafólk á Austurvelli. Í Fréttablaðinu kom fram að hann hefði eyðilagt mótmælaspjald en á Twitter sakar einn þátttakandi í mótmælunum hann um að hafa kýlt mótmælanda í andlitið.

Varaformaður Samfylkingarinnar vottar íbúum samúð sína

Heiða Björg Hilmisdóttir, formaður Velferðarráðs Reykjavíkurborgar og varaformaður Samfylkingarinnar, er íbúi í hverfinu þar sem voðaverkið var framið og vottar hún íbúunum samúð sína í færslu sem hún birti í íbúahópi Langholtshverfis á Facebook. Í ummælum undir þeirri færslu er vakin athygli á því að íbúum hafi lengi staðið stuggur af hinum grunaða og hann hafi þurft sértæk úrræði sem hann hafi ekki fengið. Einn íbúi vekur jafnframt athygli á vanda annars einstaklings sem býr í hverfinu:

„Það er ekki hægt annað en að taka undir þetta, sérstaklega í ljósi þess að harmleikurinn hefur átt sér margra ára aðdraganda. M.ö.o., þá hefði verið hægt að koma í veg fyrir þetta og það er þyngra en tárum taki. Kannski vekur þetta áhuga velferðarsviðs, Heiða Björg Hilmisdóttir, á að leysa málin á Langholtsvegi 19 þar sem afskaplega veikur einstaklingur býr á vegum borgarinnar og hefur valdið öðrum íbúum (2 ára upp í 92 ára) ómældum vandræðum, ónæði, hræðslu og svefnleysi, svo eitthvað sé nefnt. Það ætti að segja sitt ef einföld talning yrði gerð á símtölum með kvörtunum til velferðarsviðs og eins tölum um komur lögreglu á staðinn til að skakka leikinn (að beiðni íbúa sem gjarnan vilja sofa á nóttunni). Það er mér óskiljanlegt, allra vegna, að hægt sé að horfa framhjá svona löguðu.“

Heiða Björg svarar og bendir á að hún þekki ekki til þessa máls og það eitt hafi vakað fyrir henni með skrifunum að tjá íbúunum samúð sína.

Nokkur umræða hefur verið um meint andlegt ástand hins grunaða og nágrannar hafa lýst þeirri skoðun að hann hafi átt að búa í sértæki úrræði en ekki í almennu íbúahverfi. DV hefur hins vegar engar upplýsingar um það hvort leitað hafi verið sértækra úrræða fyrir hans hönd né hvernig slíkum beiðnum kunni að hafa verið mætt.

Þær upplýsingar hafa komið frá lögreglu að andlegt ástand hins grunaða sé nú kannað.

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 18 klukkutímum

Afbrotafræðingur tjáir sig um tálbeituaðgerðir í ljósi manndrápsmálsins – „Villta vestrið leysir ekki málin og notkun tálbeitu er varasöm“

Afbrotafræðingur tjáir sig um tálbeituaðgerðir í ljósi manndrápsmálsins – „Villta vestrið leysir ekki málin og notkun tálbeitu er varasöm“
Fréttir
Fyrir 19 klukkutímum

Sofia fannst látin – Meintur gerandi hennar lést áður en til ákæru kom

Sofia fannst látin – Meintur gerandi hennar lést áður en til ákæru kom
Fréttir
Fyrir 21 klukkutímum

Enn ein svikasíðan í skjóli á Kalkofnsveginum – Logið upp á fræga leikkonu

Enn ein svikasíðan í skjóli á Kalkofnsveginum – Logið upp á fræga leikkonu
Fréttir
Fyrir 21 klukkutímum

Elliði tjáir sig um manndrápsmálið – „Eftir voveifilegan atburð getur samfélagið fundið leiðir til að standa saman“

Elliði tjáir sig um manndrápsmálið – „Eftir voveifilegan atburð getur samfélagið fundið leiðir til að standa saman“
Fréttir
Í gær

Alfreð Erling sýknaður – Gert að sæta öryggisgæslu á viðeigandi stofnun

Alfreð Erling sýknaður – Gert að sæta öryggisgæslu á viðeigandi stofnun
Fréttir
Í gær

Guðni segir að Sigurður Ingi þurfi að herða sig: „Ekkert markvert hefur heyrst frá formanni flokksins“

Guðni segir að Sigurður Ingi þurfi að herða sig: „Ekkert markvert hefur heyrst frá formanni flokksins“