fbpx
Þriðjudagur 05.nóvember 2024
Fréttir

Melkorka: „Gerði mig að skotmarki og niðurlægði mig ítrekað í dómssal“ –  Sjöunda kvörtunin af tíu

Erla Hlynsdóttir
Þriðjudaginn 31. maí 2022 12:01

Samsett mynd/Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ein af tíu mæðrum sem hefur sent kvörtun til embættis Landlæknis vegna vinnubragða sálfræðinga í forsjármálum segir að sálfræðingurinn sem var í hlutverki sérfróðs meðdómanda í hennar máli hafi gert lítið úr vanrækslu og barnaverndarlagabrotum föður í garð barnsins. Þrátt fyrir að gögn hafi verið lögð fram um ofbeldi, svo sem lögregluskýrslur, hafi verið komist að þeirri niðurstöðu að samband foreldra hafi verið „stormasamt“ og ekki hægt að skera úr um hver beri ábyrgð.  Þá hafi verið dæmd sameiginleg forsjá þrátt fyrir að forsjárhæfni móður hafi verið mun betri en föður samkvæmt mati.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Líf án ofbeldis sem sagt var frá um miðjan mánuðinn en þar kom fram að alls tíu mæður hafa sent kvörtun til embættis Landlæknis vegna „ófaglegra vinnubragða og hlutdrægni sálfræðinga sem taka að sér hlutverk dómkvaddra matsmanna og sérfróðra meðdómsmanna í forsjármálum.“  Umræddir sálfræðingar eru þrír, þau Guðrún Oddsdóttir, Ragna Ólafsdóttir og Gunnar Hrafn Birgisson.

DV hefur óskað eftir viðbrögðum frá þeim öllum þremur – Guðrúnu, Rögnu og Gunnars Hrafns – vegna umræddra kvartana en engin svör hafa borist.

Sjá einnig: Tíu mæður lýsa „ófaglegum vinnubrögðum og hlutdrægni“ þessara matsmanna í forsjármálum og leita til Landlæknis

Afrit af þessum tíu kvörtunum fylgdu tilkynningunni frá Líf á ofbeldis sem eru baráttusamtöku mæðra og uppkominna barna sem krefjast þess að börn séu vernduð gegn ofbeldi í umgengnis- og forsjármálum.

Sjá einnig: Þetta eru spurningarnar sem matsmennirnir þrír neita að svara

Kvörtunin sem greint er frá hér að ofan er frá Melkorku Þórhallsdóttur vegna starfa Guðrúnar Oddsdóttur í forsjármáli sem sérfróður meðdómandi og var send til embættis landlæknis þann 19. apríl 2022.

Þar kemur fram að Guðrún hafi verið sá dómari sem spurði Melkorku spurninga á meðan hinir tveir hafi lítið sagt.

„… ég hafði á tilfinningunni að hún hefði mest áhrif á dómsniðurstöðuna. Ég áttaði mig fljótlega á því að ekki var hlustað á mig, né voru frásagnir mínar taldar marktækar. Ég sagði frá tveimur mismunandi atvikum þar sem barnsfaðir hafði ráðist á mig og barnið sem þá var í kringum tveggja ára aldur – atvik sem voru alvarleg og tilkynnt til lõgreglu. Það var ekki hlustað og þessi atvik ekki talin skipta máli.“

 

Afrit af kvörtum Melkorku Þórhallsdóttur vegna starfa Guðrúnar Oddsdóttur í heild sinni:

Guðrún Oddsdóttir sálfræðingur kom að dómsmáli mínu þann 11. febrúar 2020. Aðrir dómarar voru Bogi Hjálmtýsson & Ástríður Grímsdóttir. Málið mitt var um forsjá og umgengni – án nokkurs vafa erfitt og einstaklega viðkvæmt mál.

Ég finn mig knúna til að leggja fram formlega kvörtun vegna aðkomu Guðrúnar Oddsdóttur í málinu mínu. Guðrún var sá dómari sem spurði mig spurninga, meðan hinir tveir sögðu lítið, og ég hafði á tilfinningunni að hún hefði mest áhrif á dómsniðurstöðuna. Ég áttaði mig fljótlega á því að ekki var hlustað á mig, né voru frásagnir mínar taldar marktækar. Ég sagði frá tveimur mismunandi atvikum þar sem barnsfaðir hafði ráðist á mig og barnið sem þá var í kringum tveggja ára aldur – atvik sem voru alvarleg og tilkynnt til lõgreglu. Það var ekki hlustað og þessi atvik ekki talin skipta máli. Í staðinn spurði Guðrún mig, hvort ég “gengi út frá því að ég ætti barnið ein”. Lítið var gert úr vanrækslu og barnaverndarlagabrotum fõður í garð barnsins. Tel ég þessa spurningu Guðrúnar undarlega, í ljósi þess að börn eru ekki eingetin og ætti að vera mér fyllilega ljóst að barnsfaðir minn er faðir barnsins fyrst ég sé í forsjármáli við hann. Þessi spurning um eignarétt yfir barni er einstaklega óviðeigandi þegar um er að ræða ofbeldi gegn barni.

Bogi Hjálmtýsson hafði àrið 2019 dæmt um umgengni við föðurinn, undir eftirliti, sem segir mér að Bogi sá þá ástæðu til að verja barnið fyrir hugsanlegu ofbeldi. Eitthvað breyttist þegar Guðrún kom að málinu sem dómari. Guðrún Oddsdóttir gerði mig að skotmarki og niðurlægði mig ítrekað í dómssal á meðan barnsfaðir minn, sem hefur langa sögu um ofbeldi gegn mér og barninu og braut gegn okkur í óteljandi skipti, var settur á stall. Ég talaði um ofbeldi fyrir tómum eyrum í dómssal og fann verulega fyrir fjandsamlegu viðhorfi Guðrúnar til mín. Ég talaði um hættuna sem stafaði af barnsföður, en ekki var hlustað.

Út frá mati Valgerðar Magnúsdóttur sálfræðings og matsmanns, var og er forsjárhæfni mín mun betri en föður. Þrátt fyrir það var dæmd sameiginlega forsjá. Gögn voru lögð fram fyrir dóm um ofbeldið, svo sem lögregluskýrslur og dagbók lögreglu, en samt er komist að þeirri niðurstöðu að sambandið hafi verið “stormasamt” og ekki hægt að skera úr um hver beri ábyrgð á því. Einnig að ég hafi tálmað umgengni, sem samrýmist ekki þeirri frásögn minni um nauðsyn þess að vernda barnið, auk gagna um ofbeldið. Er matsgerðin og niðurstaða hennar þar með alfarið hunsuð, á þeim grunni að ég hafi tálmað umgengni. Dómurinn í heild sinni er í mikilli þversögn og ruglingslegur. Þar sem Guðrún Oddsdóttir starfar sem sálfræðingur tel ég rétt að kvarta yfir hennar störfum til embættis landlæknis.

Sjá einnig: „Hló að móður þegar hún lýsti frásögn sinni af mjög alvarlegu ofbeldi“ – Ein af kvörtununum tíu í heild sinni

Sjá einnig: Segir móður hafa „mistúlkað orð dóttur minnar sem voru meðal annars að hana klæjaði í píkunni því „pabbi skegg kitlar““ – Önnur af kvörtununum tíu í heild sinni

Sjá einnig: Móðir segir að sonur sé „kinnfiskasoginn og horaður eftir umgengni við föður, því þar fór hann svangur að sofa“ – Þriðja kvörtunin af tíu í heild sinni

Sjá einnig:  Helga Sif segir matsmann hafa gaslýst dóttur sína – „Hvað er eiginlega að Helgu?”- Fjórða kvörtunin af tíu

Sjá einnig: Bryndís segir matsmann gera henni upp „falskar minningar“ um ofbeldi og vænir hana um lyfjaneyslu – Fimmta kvörtunin af tíu

Sjá einnig: „Faðir frelsissvipti barnið í marga sólarhringa“ og setti staðsetningarbúnað í síma – Sjötta kvörtunin af tíu

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 17 klukkutímum

Viðbragð Veðurstofunnar virkjað í nótt: Töldu að kvikuhlaup gæti verið að hefjast

Viðbragð Veðurstofunnar virkjað í nótt: Töldu að kvikuhlaup gæti verið að hefjast
Fréttir
Fyrir 17 klukkutímum

Gat ekki tjáð sig öðruvísi en með öskrum og svívirðingum

Gat ekki tjáð sig öðruvísi en með öskrum og svívirðingum
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Netárás tók endurritun internetsins úr sambandi

Netárás tók endurritun internetsins úr sambandi
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Þessi töluðu minnst á Alþingi á kjörtímabilinu

Þessi töluðu minnst á Alþingi á kjörtímabilinu
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Flýja til Íslands á meðan forsetakosningarnar standa yfir – „Það verður svo mikill hávaði og svo mikil ringulreið“

Flýja til Íslands á meðan forsetakosningarnar standa yfir – „Það verður svo mikill hávaði og svo mikil ringulreið“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Ný könnun: Viðreisn nartar í hælana á Samfylkingunni – Píratar og VG í klandri

Ný könnun: Viðreisn nartar í hælana á Samfylkingunni – Píratar og VG í klandri