fbpx
Laugardagur 22.febrúar 2025
Fréttir

Glannaakstur sendibíls Eimskips olli næstum því alvarlegu slysi – „Við hörmum atvikið“

Ritstjórn DV
Föstudaginn 4. mars 2022 13:51

Glannaakstur sendibílsins olli næstum því alvarlegu slysi

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Glæfralegur akstur sendibíls sem að merktur er flutningafyrirtækinu Eimskip hefur vakið mika athygli undanfarinn sólarhring. Myndbandið er tekið úr mælaborðið bifreiðar sem ekur í norðvesturátt eftir Sæbrautinni. Skyndilega svínar sendibíll frá Eimskip fyrir bifreiðina og keyrir yfir á aðrein uppá Miklubraut þar sem litlu má muna að sendibíllinn lendi í alvarlegum árekstri við lítinn fólksbíl. Greinilegt er að sá sem tekur myndbandið upp er verulega brugðið því hann nær aðeins að stynja upp „what the fuck.“

Netverjum verulega misboðið

Tiktok-notandinn Róbert Orri Friðriksson (@rbertorrifririkss) birti myndbandið á vefsvæði sínu í gærkvöldi og hefur myndbandið fengið um 13 þúsund spilanir á stuttum tíma.  Ljóst er að netverjum er verulega misboðið og er bílstjóranum ekki vandaðar kveðjurnar. Útlenskur notandi segir það til marks um að Íslendingar kunni ekki að keyra.

Í skriflegu svari við fyrirspurn DV segir Edda Rut Björnsdóttir, framkvæmdastjóri mannauðs- og samskiptasviðs Eimskip að fyrirtækinu hafi borist ábendingar um myndbandið. „Það er okkur mikilvægt að bílstjórar okkar séu til fyrirmyndar í umferðinni og fylgi öryggisreglum. Okkur var því brugðið að sjá það og lítum þetta mjög alvarlegum augum enda er svona akstur ekki í samræmi við öryggisreglur félagsins. Við hörmum atvikið og þegar hefur verið rætt við bílstjórann,“ segir Edda.

Hér má sjá myndbandið af glæfraakstrinum

Eimskip.mp4
play-sharp-fill

Eimskip.mp4

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Hafði ekki erindi sem erfiði eftir að mistókst að vinna bug á fýlusvipnum

Hafði ekki erindi sem erfiði eftir að mistókst að vinna bug á fýlusvipnum
Fréttir
Í gær

Gunnar minnist óhugnanlegrar aðkomu – „Maður getur rétt ímyndað sér tímann sem þau höfðu vakað“

Gunnar minnist óhugnanlegrar aðkomu – „Maður getur rétt ímyndað sér tímann sem þau höfðu vakað“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Sambýlismaður yfirmanns sorpmála var ráðinn sem ráðgjafi við breytingar á sorphirðukerfi Akureyrar – Sviðsstjóri játar mistök

Sambýlismaður yfirmanns sorpmála var ráðinn sem ráðgjafi við breytingar á sorphirðukerfi Akureyrar – Sviðsstjóri játar mistök
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Dómur þyngdur yfir hælisleitanda sem nauðgaði 13 ára barni

Dómur þyngdur yfir hælisleitanda sem nauðgaði 13 ára barni
Hide picture