Góð samskipti, ráðgjafafyrirtæki almannatengilsins Andrésar Jónssonar, hefur birt lista yfir tuttugu vonarstjörnur í íslensku viðskiptalífi. Fyrr í dag birti Andrés lista yfir fjörutíu efnilega stjórnendur sem eru 40 ára og yngri, eða 40/40 listann svokallaða, en þetta var í þriðja sinn sem fyrirtækið tekur saman slíkan lista.
Á listanum um vonarstjörnurnar, sem birtist á Medium-síðu Góðra samskipta, kemur fram að frumkvöðlar og stjórnendur eigin fyrirtækja séu undanskildir. „Allt fólk sem miklar væntingar eru bundnar við á næstu árum og hefur vakið athygli fyrir hæfileika og metnað,“ skrifar Andrés.
Meðal þeirra sem eru á listanum eru:
Ásbjörn Sigurjónsson (31), verkefnastjóri hjá Marel
Brynja Ragnarsdóttir (37), forstöðumaður upplifunar viðskiptavina hjá Orkuveitu Reykjavíkur
Helena Sævarsdóttir (28), deildarstjóri lyfjaframleiðslu hjá Alvotech
Sigríður Theodóra Pétursdóttir (36), framkvæmdastjóri Brandenburg.
Hér er hægt að kynna sér lista Góðra Samskipta um vonarstjörnurnar í heild sinni