fbpx
Þriðjudagur 16.júlí 2024
Fréttir

Júlí Heiðar gerir samning við Sony – „Þessar viðtökur við laginu hafa farið fram úr mínum björtustu vonum“

Fókus
Fimmtudaginn 10. mars 2022 17:41

Fannar Freyr og Júlí Heiðar handsala samninginn við fulltrúa Sony, Pétur Finnbogason

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Tónlistarmaðurinn Júlí Heiðar Halldórsson og Fannar Freyr Magnússon, pródúsent, hafa skrifað undir samning við tónlistarrisann Sony um útgáfu á næstu plötu Júlí Heiðars sem ráðgert er að komi út í september á þessu ári.

„Ég er afar ánægður með að þetta samstarf við Sony hefur verið innsiglað. Þetta gerir það að verkum að ég og Fannar Freyr getum einbeitt okkur að því að semja og spila tónlist og vitað að aðrir þættir útgáfunnar eru í öruggum höndum fagmanna hjá Sony,“ segir Júlí Heiðar í samtali við Fókus.

Flest hefur gengið Júlí Heiðari í hag á árinu en nýjasta lagið úr hans smiðju, Ástin heldur vöku, hefur trónað á toppi íslenska listans undanfarnar fjórar vikur.

„Þessar viðtökur við laginu hafa farið fram úr mínum björtustu vonum og hafa átt sinn þátt í að ýmsar dyr hafa opnast fyrir mér undanfarin misseri. Ég taldi þessa vegferð með Sony vera mest spennandi og núna get ég í raun ekki beðið eftir að gefa út fleiri lög og síðan plötuna mín í haust. Það gefur manni aukinn kraft í öllu ferlinu að vita til þess að fólk kann að meta tónlistina mína,“ segir Júlí Heiðar, sem reiknar með því að næsta lag úr smiðju tvímenninganna, komi út í aprílmánuði.

Hér má hlýða á lagið Ástin heldur vöku:

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 22 klukkutímum

Dómarinn rifjaði upp langan brotaferil Kourani – Hefur aldrei stundað vinnu á Íslandi

Dómarinn rifjaði upp langan brotaferil Kourani – Hefur aldrei stundað vinnu á Íslandi
Fréttir
Fyrir 22 klukkutímum

Auglýsingin fræga á Laugaveginum að hverfa – „Hræðilegt það er verið að byrja að mála yfir þetta“

Auglýsingin fræga á Laugaveginum að hverfa – „Hræðilegt það er verið að byrja að mála yfir þetta“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

„Það er siðferðislega óásættanlegt að þessu tjóni verði eingöngu velt yfir á íbúa í Vestmannaeyjum “

„Það er siðferðislega óásættanlegt að þessu tjóni verði eingöngu velt yfir á íbúa í Vestmannaeyjum “
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Íslendingur dæmdur í þriggja mánaða fangelsi í Danmörku fyrir að kýla unnustu sína margsinnis á bílastæði

Íslendingur dæmdur í þriggja mánaða fangelsi í Danmörku fyrir að kýla unnustu sína margsinnis á bílastæði