fbpx
Þriðjudagur 16.júlí 2024
Fréttir

Þóra Kristín dregur formannsframboð í SÁÁ tilbaka vegna stríðsástands innan samtakanna – Kári Stefáns hættir sömuleiðis í stjórn

Björn Þorfinnsson
Fimmtudaginn 3. febrúar 2022 15:46

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þóra Kristín Ásgeirsdóttir, fjölmiðlakona og upplýsingafulltrúi Íslenskrar erfðagreiningar, hefur ákveðið að draga framboð sitt til formanns SÁÁ tilbaka og segja sig úr aðalstjórn samtakanna. Þessu lýsir hún yfir í færslu sem var að birtast á samfélagsmiðlum og kennir hún stríðsástandi innan samtakanna um. Tilkynningin kemur rétt fyrir fund stjórnar SÁÁ þar sem kjósa átti um Þóru Kristínu sem formann en fundurinn átti að fara fram kl.17.00 í dag.

Eftir að Einar Hermannsson sagði af sér sem formaður SÁÁ á dögunum í kjölfar hneykslis mál kom nafn Þóru Kristínar fljótlega upp sem mögulegur arftaki hans í formannsstóli. Að endingu skoruðu 40 manns úr 48 manna stjórn SÁÁ á hana að bjóða sig fram í embættið og ákvað Þóra Kristín að láta slag standa „ enda um stórt og spennandi verkefni að ræða á sviði sem varðar eitt mikilvægasta mál samfélagsins. Fjöldi fólks lét í sér heyra og hvatti mig áfram og það þótti mér vænt um,“ segir Þóra Kristín í færslunni.  Hún hafi þó verið meðvituð um að hún væri að leggja af stað í erfiða vegferð.

Sjá einnig: Einar segir af sér sem formaður SÁÁ – „Fyrir nokkrum árum svaraði ég auglýsingu á netinu þar sem í boði var kynlíf gegn greiðslu“

„Ég vissi fyrirfram að það ríkir hálfgert stríðsástand í þessum samtökum og hef ég ekki farið varhluta af því þótt það sé barist að tjaldabaki. Nú er unnið að því leynt og ljóst að safna glóðum elds að höfði mér úr mínu einkalífi og þar er af nógu að taka enda hef ég líkt og aðrir sem hafa farið í áfengismeðferð, lent á vegg í lífinu og gert og sagt hluti sem ég er ekki stolt af.Það er sýnu alvarlegra að fyrrverandi stjórnendur SÁÁ eru líka að hlaða í bálköst á samfélagsmiðlum fyrir Kára Stefánsson yfirmann minn og náinn vin sem hefur einnig gert margt í sinni fortíð undir áhrifum áfengis sem hann hefði betur látið ógert og situr líkt og ég í aðalstjórn SÁÁ og er löngu hættur að drekka,“ skrifar Þóra Kristín.

Þá segir hún að ónafngreindir aðilar hafi reynt að gera það tortryggilegt að hún sem starfsmaður Íslenskrar erfðagreiningar og Kári Stefánsson hafi verið að láta til sín taka starfi SÁÁ vegna samstarfs við sjúkrahús samtakanna um rannsóknir.

„Ég lýsti því strax yfir að ég ætlaði ekki að fara í fullt starf sem formaður, heldur halda áfram með líf mitt og stjórna samtökunum með þvi góða fólki sem situr í framkvæmdastjórn. Löngun mín var að stilla til friðar en ekki að auka á ófriðinn. Ég ætla því ekki að leggjast í stríðsrekstur og vil hvorki fórna starfi mínu né æru minni og yfirmanns míns fyrir sjálfboðavinnu fyrir samtökin.

Ég dreg því framboð mitt til baka til formennsku og setu í framkvæmdastjórn í von um að þau finni sér formann sem eru óumdeildur. Hættan er sú að að það sé erfitt í samtökum þar sem meirihlutinn hefur átt við áfengisvanda að stríða einhvern hluta ævinnar og verið gerendur og þolendur allskyns ofbeldis, flestir hvortveggja,“ skrifar Þóra Kristín.
Í ljósi þess hafi hún og Kári Stefánsson ákveðið að segja sig úr aðalstjórn samtakanna.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 19 klukkutímum

Bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins styður ekki Coda Terminal verkefnið við Vellina – Þyrfti aðkomu minnihlutans til að koma málinu í gegn

Bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins styður ekki Coda Terminal verkefnið við Vellina – Þyrfti aðkomu minnihlutans til að koma málinu í gegn
Fréttir
Fyrir 19 klukkutímum

Líkfundur á Tenerife í tengslum við leitina að Jay Slater

Líkfundur á Tenerife í tengslum við leitina að Jay Slater
Fréttir
Í gær

Trump í fyrsta viðtalinu eftir árásina – „Ég á að vera dauður“

Trump í fyrsta viðtalinu eftir árásina – „Ég á að vera dauður“
Fréttir
Í gær

Safnað fyrir fjölskyldu Viðars – „Setti mig og börnin okkar alltaf í fyrsta sæti“

Safnað fyrir fjölskyldu Viðars – „Setti mig og börnin okkar alltaf í fyrsta sæti“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Harmleikur í hitabylgju – Gleymdi tveggja ára dóttur sinni úti í bíl með hræðilegum afleiðingum

Harmleikur í hitabylgju – Gleymdi tveggja ára dóttur sinni úti í bíl með hræðilegum afleiðingum
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Guðrún ætlar ekki að flytja inn í Biskupsgarð – Agnes flytur út og glæsihýsið verður selt

Guðrún ætlar ekki að flytja inn í Biskupsgarð – Agnes flytur út og glæsihýsið verður selt
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Guðmundur Ingi segir verið að hafa almenning að fíflum

Guðmundur Ingi segir verið að hafa almenning að fíflum
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Fleiri Loga töskur dúkka upp – „Hvað er í gangi?“

Fleiri Loga töskur dúkka upp – „Hvað er í gangi?“