Það var klukkan 06.24 að staðartíma í gær sem himininn yfir Saratov lýstist skyndilega upp með óeðlilegri birtu og nær samtímis heyrðist mikil sprenging þegar eitthvað sprakk á herflugvelli borgarinnar.
Herflugvöllurinn er 500 km frá úkraínsku landamærunum. Enn er ekki vitað nákvæmlega hvað gerðist en svo undarlega, eða ekki, vildi til að næstum samtímis urðu sprengingar á herflugvelli í Ryazan sem er í allt öðru héraði. New York Times segir að Úkraínumenn hafi gert árásir á flugvellina með drónum.
Rússneska ríkisfréttastofan TASS segir að þrír hafi látist og fimm særst í Ryazan og að tveir hafi særst í Saratov.
Rússneska varnarmálaráðuneytið sagði í gærkvöldi að Úkraínumenn hafi gert drónaárás á flugvellina en tekist hafi að skjóta drónana niður. Ekki var getið um tjón en óháði miðillinn Astra segir að tvær Tu-95 sprengjuflugvélar hafi skemmst.
Atburðirnir þóttu svo alvarlegir að Vladímír Pútín, forseta, var tilkynnt um þá.
Eins og áður sagði þá segja Rússar og New York Times að Úkraínumenn hafi gert árásir á flugvellina og það fær kannski stuðning í torræðu tísti frá Mykhailo Podolyak, einum aðalráðgjafa Volodymyr Zelenskyy, forseta. „Jörðin er hnöttótt, það uppgötvaði Galileo. Í Kreml hafa þeir ekki lagt stund á stjörnufræði en vilja þess í stað hafa hofstjörnufræðinga. Ef þeir hefðu lært stjörnufræði myndu þeir vita að þegar maður skýtur einhverju inn í lofthelgi annars lands, þá kemur það fyrr eða síðar fljúgandi til baka,“ skrifaði hann á Twitter.
The Earth is round – discovery made by Galileo. Astronomy was not studied in Kremlin, giving preference to court astrologers. If it was, they would know: if something is launched into other countries’ airspace, sooner or later unknown flying objects will return to departure point
— Михайло Подоляк (@Podolyak_M) December 5, 2022
Í rússneskum fjölmiðlum eru nú uppi miklar vangaveltur um hvort Úkraínumenn geti sent dróna mörg hundruð kílómetra inn í Rússland. Dagblaðið Readovka birti til dæmis kort þar sem er sýnt að Úkraínumenn geti sent dróna alla leið til Moskvu.
Líklegt er talið að drónarnir hafi verið sendir á loft frá Kharkiv. Annar flaug þá 566 km til Ryazan en hinn um 700 km til Saratov.
Ekki er langt síðan Ukroboronprom, sem er stærsti vopnaframleiðandinn í Úkraínu, sagði að verið væri að ljúka við gerð dróna sem getur flogið 1.000 km með 75 kg af sprengiefni.
Í morgun bárust síðan fréttir af að drónaárás hafi verið gerð á herflugvöll í Kursk sem er ekki fjarri úkraínsku landamærunum.