Medvedev, sem hefur verið náinn samstarfsmaður Vladímír Pútíns, forseta, árum saman, er mjög í nöp við Vesturlönd og telur þau uppsprettu alls ills. Óhætt er að segja að áramótaspá hans beri keim af þessu.
Hann birti spá sína á Twitter. Í henni segir hann að ESB muni hrynja saman af því að Bretar gangi aftur í sambandið. Þetta mun að hans sögn hafa þær afleiðingar að Pólland og Ungverjaland munu hertaka vesturhéruð Úkraínu og úr þessu verður „Fjórða ríkið“ sem mun samanstanda af Þýskalandi, Póllandi, Eystrasaltsríkjunum, Tékklandi, Slóvakíu, stjórnvöldum í Kyiv og fleiri ríkjum.
Þar með er ekki sagan öll sögð því hann spáir því að stofnun „Fjórða ríkisins“ muni verða til þess að Frakkar fara í stríð við það. Það mun síðan kljúfa Evrópu í herðar niður að hans sögn og enda með að Póllandi verður skipt á milli nokkurra ríkja.
Þar með eru hörmungarnar ekki upptaldar því hann segir að borgarastyrjöld muni brjótast út í Bandaríkjunum með þeim afleiðingum að Kalifornía og Texas verði sjálfstæð ríki. Texas mun síðan taka höndum saman við Mexíkó og sameinast landinu svo úr verður nýtt ríki.
Í kjölfarið mun Elon Musk sigra í nokkrum ríkjum í forsetakosningum, það er ríkjum þar sem Repúblikanar verða við völd eftir borgarastyrjöldina.
On the New Year’s Eve, everybody’s into making predictions
Many come up with futuristic hypotheses, as if competing to single out the wildest, and even the most absurd ones.
Here’s our humble contribution.
What can happen in 2023:
— Dmitry Medvedev (@MedvedevRussiaE) December 26, 2022
Hann spáir því einnig að Norður-Írland segi skilið við Bretland og verði hluti af Írlandi.
Í kjölfar endurkomu Bretlands í ESB mun evran hrynja að sögn Medvedev og að lokum hverfa algjörlega af sjónarsviðinu.
Hann segir einnig að allir stærstu hlutabréfamarkaðirnir muni flytja til Asíu frá Bandaríkjunum og Evrópu. Það muni verða til þess að hin alþjóðlega fastgengisstefna muni hrynja og í kjölfarið muni Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn og Alþjóðabankinn einnig hrynja.
Það er líklega best að taka spádómum Medvedev með fyrirvara og líklega má telja þetta vera óskhyggju svarins óvinar Vesturlanda frekar en spádómsgáfu. Enda segir hann sjálfur að spá hans sé smávægilegt framlag til þeirra fjölda áramótaspádóma sem eru settir fram og í þeim virðist oft keppst um að koma með þá ótrúlegustu og jafnvel fáránlegustu.