Á Fréttavaktinni í kvöld segjum við frá því að Bogi Nils Bogason forstjóri Icelandair segir að óveðrið hafi valdið miklum skaða fyrir viðskiptavini og félagið sjálft. Það sé alvarlegt mál að Reykjanesbraut sé lokuð og þar með flugvöllurinn á meðan að ekkert sé að flugskilyrðum. Þarna þurfi stjórnvöld að skerast í leikinn.
Þreyttir farþegar komu úr Leifsstöð með þotu Icelandair til Reykjavíkurflugvallar í dag. Tvær þotuferðir voru farnar þrátt fyrir að Reykjanesbrautin hefði verið opnuð, vegna álagsins. Við ræðum við nokkra strandaglópa.
Formaður borgarráðs getur ekki lofað því að athvarfið Vin við Hverfisgötu verði opið áfram. Um er að ræða einn viðkvæmasta notendahóp landsins, fólk með geðraskanir. Undirskriftalistar voru afhendir í Ráðhúsinu til að mótmæla fyrirhugaðir lokun.
Íslenskir hugvitsmenn hafa búið til snjallforrit sem nemur gangtegundir og hraða íslenska hestsins. Forritinu hefur verið hampað í samfélagi íslenska hestsins um allan heim.