Fréttir

Leita að föðurlandssvikurum í Kherson

Mynd
Föðurlandssvikarar bundnir við staura á almannafæri í Kherson.

Rússar hörfuðu frá borginni Kherson fyrir nokkrum vikum og Úkraínumenn ráða nú lögum og lofum í borginni. Þessa dagana stendur leit yfir að þeim sem Úkraínumenn flokka sem föðurlandssvikara, það er Úkraínumönnum sem starfa með Rússum.

Lögreglumenn eru nú með varðstöðvar við borgina og fara um götur hennar. Þeir biðja fólk um skilríki, spyrja það spurninga og leita í bílum.

Markmiðið með þessu er að leggja aukinn þrýsting á þá sem starfa með Rússum, fólk sem óttast er að veiti Rússum upplýsingar.

Fram að þessu hafa 130 verið handteknir í Kherson, grunaðir um að vera samverkamenn Rússa, að sögn varainnanríkisráðherra Úkraínu.

Héraðsstjórinn í Kherson segir að margir Úkraínumenn hafi starfað með Rússum en úkraínsk yfirvöld hafi gögn um þá alla. Þeim verði öllum refsað.