Í Kreml hafa ráðamenn að vonum áhyggjur af að herinn bíði enn frekari ósigra í Úkraínu og ekki voru drónaárásir Úkraínumanna á þrjá herflugvelli, langt inni í Rússlandi, í gær og fyrradag til að draga úr áhyggjunum. En sagan segir að Rússum hefur oft tekist að snúa gangi stríðs, sér í hag. En hvort það gerist núna er annað mál.
Það má kannski segja að staðan í Rússlandi þessa dagana minni á tíma sem Evrópubúar héldu að væru að baki og þeir myndu aldrei upplifa aftur. Lík rússneskra hermanna eru brennd á bálköstum í Úkraínu, allir vopnfærir karlmenn í þorpum og bæjum sendir til Úkraínu, sögur af herkvöddum mönnum sem eru sendir beint í dauðann í fremstu víglínu.
„Árangurinn af sókninni, sem var „vel“ skipulögð af hinum „mikla herforingja“ var að við misstum 300 menn á fjórum dögum, þeir voru drepnir, særðust eða er saknað. Við misstum helminginn af búnaði okkar. Þetta á bara við um herdeildina okkar,“ sögðu herkvaddir menn frá Vladivostok í bréfi til héraðsstjórans fyrir nokkrum vikum.
Hvað varðar mannfall rússneska hersins þá halda rússnesk yfirvöld þeim tölum stranglega leyndum en Úkraínumenn segjast hafa fellt tugi þúsunda rússneskra hermanna. Í nóvember sagði Mark Milley, æðsti yfirmaður bandaríska hersins, að hann teldi að Rússar hefðu misst um 100.000 hermenn og næði sú tala yfir fallna, særða og þá sem er saknað. Til samanburðar má nefna að í tæplega tíu ára stríði Sovétríkjanna í Afganistan misstu þau um 14.000 hermenn.
En hvað varðar spurninguna um hversu marga hermenn Rússar þola að missa í Úkraínu þá muna ráðamenn í Moskvu væntanlega vel afleiðingar af veikburða frammistöðu hersins í fyrri heimsstyrjöldinni. Þá misstu Rússar rúmlega tvær milljónir hermanna. Þetta mikla mannfall endaði með uppreisn, borgarastyrjöld og falli keisarans. Í því sambandi er rétt að hafa í huga að Pútín hefur í vaxandi mæli sagt keisarann vera fyrirmynd sína.
Stóra spurningin er að mati margra sérfræðinga hvenær rússneskar mæður fá nóg og grípa til aðgerða, fara að mótmæla. Í Rússlandi er hlustað á mæður og þær njóta mikillar virðingar. Hugsanlega eru rússneskar mæður það sem Pútín óttast mest!